Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Qupperneq 9

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Qupperneq 9
N.Kv. UM SUMARDAG 93 Eg skal skreppa út og biðja manninn að líta á maskínuna í honum, segir Marsibil. Hún kemur íljótlega til baka með heljar- mikinn Þingeying sér við hlið. Hann gæg- ist undir húddið eitt augnablik, skellir því aftur, og ég sé ekki betur en mannfjandinn glotti út að eyrum. — Er þetta mjög bölvað, kalla ég til hans. — Ég sé ekki betur en bíllinn sé í gangi, reyndu að taka af stað. — Jú, mikið rétt, bíllinn var í gangi og bafði alltaf verið í gangi. Ég hafði bara ekki heyrt það fyrir dómadagsdjöflagang- inum í hinu troginu. Svo mjaka ég bílnum hættulega nærri vegarbrúninni undir eftirliti og stjórn Marsibilar, og mér léttir stórum, þegar ég sé á eftir þessu óláns mjólkurtrogi niður brekkuna. Ur þessu gengur ferðin vel. Að vísu er ákaflega seinfarið niður brekkurnar að austan. Það kemur nefnilega í ljós, að Marsibil ber ekki ótakmarkað traust til ökumannshæfileika minna, því að við hverja einustu beygju uppástendur hún að fara út og ganga. En í skóginn komumst við þó að lokum, þó að ótrúlegt sé, án nokkurra óhappa. Við erum bæði í hreinasta sólskinsskapi, þegar við erum sezt niður í indælu skógar- rjóðri og farin að snæða af nestisbirgðun- um. Ég fer að spauga og get ekki stillt mig um að stríða Marsibil dálítið og segi með góðlátlegri glettni: Jæja, Marsibil mín. Heldurðu að væri nú ekki rétt af þér að fara að taka upp sjúkravörurnar, bera á þig joðið, binda á þig spelkur, líma á þig nokkra plástra og smakka ögn á sprittinu og kamfórunni. Það er fullsnennnt fyrir þig að hælast um, segir hún. Ferðin er ekki á enda. Þegar við leggjum heim á leið, finnur Marsibil upp á því að vilja endilega fara út í Fnjóskadal og heimsækja einhverja fjar- skylda ættingja þar á einum bæ. Ég er þá svo rýmilegur að samþykkja þetta orða- laust, enda liggur svo vel á mér, að ég syng við raust undir stýrinu: Um sumardag er sólin skín o. s. frv. Svo rennum við í hlað á kotinu með prompi og pragt. Marsibil kynnir okkur fyrir fólkinu og segist vera skyld því. En á meðan athuga ég umhverfið og kringumstæðurnar svo lítið ber á. Og þetta var hreint ekki svo glæsilegt, ef það var skoðað með sérþekkingu öku- mannsins. Heimreiðin þröngur, ómalarbor- inn stígur, hlaðið svolítil penta, og takmark- ast á tvo vegu af íbúðarhúsi og fjósbygg- ingu, sem inynda vinkil, en neðan undir snarbrött brekka með vellandi fjóshaug og vilpu, en girðing á eina hlið. Hér mundi þurfa mikla lagni og aðgæzlu til að snúa bíl og ekki bætti það úr, að á þessum litla bletti skyldi líka þurfa að standa bæði hestkerra og taðkvörn. Svo erum við boðin til stofu og komið með góðgjörðir. Við segjum: Það er nú ó- þarfi -— og tölum um að bera í bakkafull- an lækinn — og viðhöfum alls konar kurt- eisi, sem hæfir fínu fólki úr kaupstað. Marsibil leikur á als oddi og leikur fína hefðarfrú af svo sálrænu innsæi, að ég verð hreinlega stórhrifinn af leikarahæfileikum hennar. En ég get þó ekki almennilega tekið þátt í samræðum eða notið góðgjörðanna sem skyldi fyrir áhyggjum af burtförinni.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.