Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Page 13

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Page 13
N.Kv. LÍFIÐ ER BYRJAÐ 97 laus,“ sagði hann og hló. „Auðvitað ætla ég að giftast þér.“ Hún vissi, að þetta var alvara hjá honum. Þetta bónorð var honum líkt. Hún svaraði: „Mér er ekki kunnugt um, að við höfum rætt þetta mál fyrr en nú.“ „Þarf mikið um það að ræða. Við erum hvort öðru kunnug. Og ég veit, að þú værir ekki með mér, ef um annan mann væri að ræða. Eg álít að við eigum vel saman. Það mun verða hollt og heppilegt fyrir okkur bæði.“ Hún nam skyndilega staðar. Hún horfði upp á hinar Idaðlausu heykigreinar. Sólar- geisli féll á andlit hennar. Hún fór að hugsa um þetta eina orð — ást. Hann staðnæmdist einnig og horfði á liana hvössum augum. Hún laut höfði og hnyklaði augnabrún- irnar. Svo mælti hún: „Eg veit ekki hvað segja skal, Gregers. En það, sem nefnt er ást verður þó að vera fyrir hendi. Það, sem þú sagðir áðan líktist því, að þú værir að gefa út lyfseðil. Menn tala ekki eins og þú gerðir, ef um ást er að ræða.“ Hann svaraði: „Þú vilt hafa einhverja draumóra.“ Hann tók undir handlegg henn- ar, og þau leiddust, er þau héldu áfram göngunni. „Eg trúi ekki á skýjaborgir, Birta. Við nútíma fólk ættum að vera vax- in upp úr því sem nefnt er skot og ást. Við eigum að vera hrein og bein.“ „Já, en trúir þú þá alls ekki að neinn ______?“ Hann svaraði: „Ég trúi á lífið lífeðlis- lega séð. Eg trúi því að maður og kona geti orðið hamingjusöm án þess að gera sér íál- vonir um óviðjafnanlega sælu.“ Hún vissi ekki hverju svara skyldi. Hún virti hreinskilni hans. Það munaði litlu, að hún féllist á þessa skoðun hans. Biría hafði séð mikla ást gufa burt. En þó ólguðu mót- mælin í sál hennar. Sú ást, er allt gleymdist fyrir, hlaut þó að vera eftirsóknarverð. Menn þurftu að njóta þeirrar ástar, þó að ekki væri nema um stundarsakir, er aldrei gleymdist og hrifi hug og hjarta fram á elliár. Hún vissi að þvílík ást var til. „Jæja, Gregers. Eg hefi þó trú á öllu þessu, er þú afneitar.“ „Hvaðan hefirðu þá trú? Úr bókum, kvikmyndum eða leikhúsum? Eða hefir þú sjálf reynt eitthvað í þessu efni?“ Hún horfði dreymandi á hann. Já, hún sagðist hafa kynnzt þessari tilfinningu. En þá hefði hún verið svo ung. Hann mælti: „Þú getur hugsað um þetta. Þú ert vitanlega sjálfráð. En dragðu það ekki of lengi að taka ákvörðun. Lífið er stutt.“ Hún kinkaði kolli. Um þetta hafði hún hugsað. Hún vildi þess vegna ekki svara málaleitan hans neitandi. Hann hafði marga kosti. Og hún vissi, að honum þótti vænt um hana. Já, lífið var stutt. Þau gengu gegnum skóginn í storminum. Skógurinn var fölnaður. En næsta vor mundi hann standa í fullum blóma. Þegar þau komu til „Veiðimannakof- ans“ var hvert rúm fullskipað. Gregers og Birta hristu höfuðin. Þetta var leiðinlegt, og þau voru sár svöng. Þá reis hár, ljós- hærður maður úr sæti sínu og gaf þeim merki um að koma. Hann hafði borð úti í horni. Gregers mælti: „Þetta er Lunde magist- er. Manstu ekki eftir honum? Hann var kennari í þriðja g og kenndi bókmennta- sögu.“ Birta stóð augnablik og horfði á ljós- hærða manninn. Hann var mjög stór vextL Það kom ljómi í augu hennar.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.