Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Page 16

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Page 16
100 SJÓNARVOTTUR N.Kv. í skólanum duldi hann ást sína með ónot- um. En nú var lífið byrjað. Hún rétti honum hönd sína og brosti. Öll gremja var horfin. ísinn hafði bráðnað. Og er þau skönnnu síðar gengu um skóginn, þar sem trén voru ber og nakin og biðu vorsins, vissu þau, að vor og sumar var einnig á leiðinni til þeirra. Williom Irish: Sjónarvottur Skáldsaga. Guðmundur Frímann þýddi. (Niðurlag.) Nú skarst konan einnig í leikinn. Hún byrjaði strax að tala. Rödd hennar var lág og köld og hafði dýpri áhrif á Buddy en verstu skammaryrði. Það var líkast því, að hún væri að ráðstafa poka með grænmeti. „Stattu ekki eins og sauður á miðri göt- unni, Jói. Reyndu að koma honum upp á gangstéttina.“ Buddy barðist um á hæl og hnakka. Stuttir handleggir hans snerust eins og vængir á vindmyllu. En barsmíðið tók skjótt enda. Maðurinn sneri upp á annan hand- legg hans og hélt honum þannig föstum. Hver minnsta hreyfing orsakaði óbærileg- an sársauka. Þau þokuðu sér öll þrjú upp á gangstétt- ina. Tveir fullorðnir og lítill drengur í milli. Enginn gat séð, að hann væri leiddur áfram nauðugur. Heljartak mannsins um handlegg hans neyddi hann áfram. Skyldu þau aldrei mæta einum? Var bærinn mannlaus einmitt þetta kvöld? Nei, þarna komu einhverjir á móti þeim. Að þessu sinni voru það tveir menn. Þeir .slöguðu ekki, gengu strikbeint áfram, full- komlega ódrukknir. Þetta Idutu að vera menn, sem óhætt væri að tala skynsamlega við. Þeir mundu vissulega hjálpa honum. Þeir urðu að hjálpa honum. Þeir komu beint á móti þremenningunum, annars hefðu fangaverðir hans efalaust gert til- raun til að sniðganga þá. Þess var enginn kostur. Mennirnir tveir voru nýkomnir fyr- ir götuhorn og svo nærri, að þeir hlutu að sjá þau of greinilega ,til þess að hættandi væri á að breyta um stefnu. Það hefði vak- ið grunsemdir. Jói, eins og konan hafði kallað hann, herti takið um handlegg Buddys til frek- ara öryggis. Sársaukinn hafði verið nægur fyrir, en nú varð hann næstum því óbæri- legur. „Ef þú segir aukatekið orð,“ hvíslaði hann ógnandi, „þá ríf ég af þér handlegg- inn.“ Buddy beið þess að mertuirnir tveir yrðu þeim samsíða. Hann safnaði öllu því mót- stöðuafli, sem hann hafði yfir að ráða, í fyrsta lagi gegn sársaukanum, sem fyrir var, og í öðru lagi gegn þeim ægikvölum, sem biðu hans.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.