Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Blaðsíða 22

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Blaðsíða 22
106 S J ÓNARV OTTUR N.Kv. risu á höfði hans. Ef til vill sáu þau betur í myrkri en augu hans og sögðu honum, að hann mætti ekki hreifa sig — ekki litla fingur. Ef til vill vissu þau eitthvað, sem hann vissi ekki. En kyrr varð hann að vera, það var öldungis víst. Þetta stóð ekki lengi. Allt í einu heyrði Buddy raddir að neðan; margar raddir, eins og fólk hefði þyrpzt inn af götunni. Það glóði í nokkur ljós. Svo kom ljós, sem var sterkara en öll hin; gildur straumur frá kastljósi, sem fikaði sig leitandi upp vegginn, unz hann fann Buddy. Og nú gat Buddy greint hvernig umhverf- is var. Stiginn með öllu var hruninn til grunna; aðeins nokkrir bjálkar og borð- endar héngu hér og hvar í veggjunum. A einum slíkum stóð hann. Eins og á hyllu. Hyllu, sem endaði rétt við fætur hans, fimm hæðum ofan við götu. Það var kallað til hans gegnum gjallar- horn. Rödd mannsins var ótrúlega róleg og vinsamleg, þó var hún ekki með öllu laus við skjálfta: „Láttu aftur augun, drengur minn! Okk- ur mun áreiðanlega takast að ná þér niður. Láttu bara aftur augun. Ekki horfa. Hugs- aðu um eitthvað annað. Kanntu margföld- unartöfluna?“ Buddy kinkaði kolli varfærnislega. Hann var hræddur við að hreifa höfuðið nema sem minnst. „Byrjaði á sinnum. Tvisvar sinnum tveir. Tvisvar sinnum þrír. Hafðu aftur augun. Hugsaðu þér, að þú sért í skólanum og að kennarinn standi beint fyrir framan þig. En hreifðu þig ekki. Ekki baun!“ Hann var í sjötta bekk, vissu þeir það ekki? Og vissu þeir ekki að hann lærði margföldunartöfluna í þriðja bekk? En hann byrjaði samt sem áður. Fyrst á tvisvar sinnum, síðan á þrisvar sinnum. Þá hætti hann. Hann kallaði með skærri drengjarödd: „Hve lengi þarf eg að standa hér? Þafr er eins og eg standi á nálaroddum. Og nú er eg byrjaður á fjórum sinnum.“ „Heyrðu, drengur minn! Hvort viltu heldur að hjálpin verði skjót, en dálítið á- hættusöm, eða tafsöm, en trygg?“ „Hjálpið mér eins fljótt og þið getið,“ svaraði hann. „Mig er farið að svima.“ „Ágætt“, drundi röddin að neðan. „Við höfum komið fyrir brunasegli hérna niðri. Þú getur ekki séð það vegna myrkursins. En þú mátt treysta því, að við segjum þér satt.“ „Það geta staðið plankabrot út úr veggj- unum. Þau geta skaðað hann.“ mælti önnur rödd hljóðlega. Buddy heyrði hana samt sem áður. „Það tekur alltof langan tíma með þeim hætti, og drengurinn hefur víst liðið nóg.“ Buddy heyrði röddina greinilega. Og enn var kallað: „Haltu höndunum að síðunum og hafðu fæturna fasta saman. Lokaðu augunum og stökktu, þegar eg hefi talið upp að þrem. .... þrír!“ Buddy hélt að hann mundi aldrei koma niður. En allt í einu var hann þó kominn og hoppaði nokkrum sinnum upp og niður í seglinu. Honum var borgið. Hann grét nokkrar mínútur, en hann vissi ekki sjálfur af hverju hann grét. Það hlutu að vera eftirstöðvar frá þeirri stundu, að Jói gerði sig líklegan til að drepa hann. Hann vonaði, að þeir sæu það ekki. „Eg grét ekki,“ sagði hann. „Það fór bara svo mikill sandur upp í augun á mér.“ „Eg segi það sama,“ svaraði Ross úr

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.