Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Blaðsíða 28

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Blaðsíða 28
112 PITC AIRN-E Y J AN N.Kv. meinti ekkert illt með því, sem hann gerði. Hann vissi einungis ekki, hvað það var. — Farið með hann burt! skipaði Mina- rii. — Komið hér ekki framar. Þetta er helgidómur okkar. Mills reyndi að rísa a fætur. Hann var æfur af reiði og stóð með steitta linefa aug- liti til auglitis við mótstöðumann sinn, á meðan Mc Coy talaði. — Stilltu þig nú, John. Segðu ekki orð og komdu þér héðan á hrott áður en íil ])lóðsúthellinga kemur. Komdu nú. Þeir eru í fullum rétti og það er ekki auðvelt að svipta þá honum. Mills var miðaldra maður, og hörku- drættirnir í andliti Minarii og risavöxtur hans, hefðu getað vakið ótta hjá langtum yngra manni. Hann sneri við og fór með Mc Coy. Innfæddu mennirnir horfðu þögulir á eftir þeim, meðan þeir fóru niður hæðar- dragið og hurfu eftir veginum, sem lá til bústaðanna. — Þá förum við héðan allir, sagði Mi- narii, — og við skulum ekki hugsa meira um það, sem skeð hefur. Maðurinn vissi ekki hvað hann gerði. Það var rétt, sem Mc Coy sagði. Hann ætlaði ekki að fremja nein helgispjöll. Tetahiti hinkraði við, og þessir tveir menn stóðu þögulir óg litu með ánægju yf- ir verk sín. — Það er gott að musterisbyggingunni er lokið, sagði Minarii. — Helgidómurinn er í steininum. Tetahiti kinkaði kolli. — Fannst þér ekki guð styrkja þig við að bera steinana, með- an við unnum hér? — Það var auðvelt verk að bera þá. Tá- aroa hefur velþóknun á þessu musteri. Hér getum við heðið fyrir uppskerunni og sjáv- araflanum, og hér getum við skírt börnin, sem fæðast. Nú finn ég til þess í fyrsta sinni, að hjarta mitt er tengt þessu landi. Þetta er landið mitt, landið okkar. Minarii stóð þegjandi nokkra stund, síð- an spurði hann: — Þú þekkir þessa hvítu menn betur en ég. Hafa þeir engan guð? Christian hefur aldrei talað um það við mig, og ég kann ekki við að spyrja hann, en ég held að þeir tilbiðji engan guð. — Það væri merkilegt, ef þeir væru guð- lausir. Kapteinn Cook kom þrisvar sinnum til Matavia. Eg man vel eftir heimsóknum hans. Hann og inenn hans voru af sama kyn- stofni og þessir menn, en þeir héldu guðs- þjónustu sjöunda hvern dag með helgisið- um, sem ekki voru mjög ólíkir okkar. Þeir hneigðu höfuð sín, krupu og hlustuðu þegj- andi meðan einn þeirra söng. Hvítu menn- irnir hérna gera ekkert af þessu. — Það getur verið, að þeir hafi engan guð, svaraði Tetahiti. Minarii hristi alvarlegur höfuðið. — Guðlausir menn geta ekki vænst mikils. Það hefði verið betra, að við hefðum verið hér einir með konur okkar. Siðir þessara hvítu manna eru syndsamlegir í okkar augum, eins og okkar siðir í þeirra augum. — Það eru góðir menn á meðal þeirra,- sagði Tetahiti. — Já, en þeir eru það ekki allir. Nokkr- ir þeirra eru úrhrök. — Þú átt við Martin. Hann er fæddur þræll! — Það er ekki Martin einn, sagði Mi- narii alvarlega. Menn eins og Te Moa, þjónn þinn, og Hu, þjónn minn, treysta því að við verndum þá, og þó fara Mc Coy og Williams með þá eins og þræla sína. Við óskum ekki blóðsúthellinga hér. Við verð- um að vera þolinmóðir, en dagurinn kemur þegar .... Hann þagnaði og horfði hrygg- ur fram fyrir sig.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.