Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Page 30

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Page 30
114 PITCAIRN-EYJAN N.Kv. Járnsmiðurinn færði hendina upp að enninu, þegar hann kom til Christians, og heilsaði Maimiti eins og hún væri ensk kona. —- Má ég fá að tala við þig eitt augnablik, herra? spurði hann. — Já. Hvað er nú að, William? Viltu tala við mig einslega? — Já. Járnsmiðurinn stóð kyrr nokkra stund, eftir að Maimiti var farin. Hann hikaði augnablik, áður en hann tók til máls. — Ég veit ekki nema þú munir missa á- ]it á mér, þegar þú heyrir hvað ég ætla að segja, en ég verð að segja það. Mennirnir eru misjafnlega gerðir. Sumir eru vitrir og aðrir heimskir, sumir eru tilfinninganæmir — aðrir kaldgeðja. Eg þykist vita að þú viðurkennir, að eg sé enginn asni, og að eg kann handverk mitt vel, en ég er nú einu sinni þannig gerður, að ég er veikur fyrir konum, ef þá á að kalla það veikleika .... <r r I stuttu máli sagt: Eg hef misst konuna mína og verð að fá aðra. Hann þagnaði og neri vandræðalega sam- an höndunum. Christian hugsaði sig um augnablik og svaraði síðan rólega: — Eg }ief vitað þetta, það var eðlilegt að svo færi. Ég vil ekki álasa þér Williams, óskir þínar eru eðlilegar, en þú hlýtur að skilja það, að enginn af mönnunum vill skilja við sína konu og afhenda þér hana. Það, sem ég nú sting upp á, mundi vekja hneyksli lieima, en í gamla daga var það ekki óal- gengt. Att þú engan vin, sem vildi lofa þér að njóta konu sinnar með sér? Williams hristi höfuðið. Þetta kemur mér ekki til hugar, herra, ég er ekki þannig gerður. Ég vil einn eiga mína konu. — Hverja viltu svo eiga? — Hutiu. — Konu Tararn? Hvað verður þá um hann? — Hann er aðeins blökkumaður og verð- ur að skilja við hana. — Hann er maður eins og þú sjálfuiy reyndu að setja þig í hans spor. — Það veit eg vel, herra, svaraði Willi- ams, en eg verð að fá hana. Hann kreppti hnefana og leit skyndilega upp. — Fjand- inn hafi stelpuna. — Eg held hún sé að gera mig vitlausan. — Já, þetta kemur eins og hefnd, sagði Christinan við sjálfan sig. Hann leit upp. -— Ef þii tekur annars manns konu með valdi, getur það liaft alvarlegar afleiðingar fyrir okkur alla. Eg ráðlegg þér að gera það ekki. -----Þú hefur á réttu að standa, herra, það veit eg mjög vel. En eg get ekki lengur farið eftir góðum ráðum. — Þú átt við, að þú ætlir að taka kon- una, hvað sem það kostar. Athugaðu það, Williams, að þú ert of skynsamur maður til að segja slíkt. — Eg get ekki að því gert, herra Christi- an. Eg mun ekki gera það, ef allir eru á móti því. Eg vil að úr því verði skorið með atkvæðagreiðslu. Ef meirihlutinn ákveður að eg skuli ekki fá hana, þá mun eg beygja mig fyrir því. — Þú hefur engan rétt til að krefjast at- kvæðagreiðslu um mál eins og þetta, svar- aði Christian ákveðinn. — Allra sízt ef ekki er leitað samþykkis konunnar, sem á hlut að máli. Hann þagði og hugsaði sig um augna- lilik. — En þetta er samt sem áður mál, sem snertir okkur alla, og eg ætla að gera eins óg þú biður um. Við skerum úr þessu í kvöld. Sæktu hina, þegar þið hafið borðað kvöldmatinn. Um kvöldið var stillilogn og stjörnurnar tindruðu á himninum, þegar uppreisnar- mennirnir söfnuðust saman fyrir frarnan

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.