Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Side 35

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Side 35
N. Kv. PITCAIRN-EYJAN 119 þoldi hvaða regnskúr, sem komið gat. Blökkumennirnir sögðu, að svona þak gæti enzt að minnsta kosti í átta ár. Balhadi kallaði á hann til morgunverð- ar. Hún var lág, pittvaxin kona af alþýðu- ættum á Tahiti. Hún var enn ungleg og létt í hreyfingum, andlitssvipurinn ákveðinn en þó vingjarnlegur. Smith var henni mjög eft- irlátur og sýndi það á margan hátt. Hann setti hana niður á hné sér, kyssti hana og fór síðan að borða morgunverðinn. Tíu mínútum síðar lagði hann öxina á öxl sér og lagði af stað til vinnu sinnar. — Alex! Alex! Það var Tetahiti sem kallaði. Hann og Smith voru góðir vinir, og báðum þótti gaman að fiska. — Eg kom til þess að sækja þig, sagði Tahiti-búinn. — Getur þú farið frá því, sem þú ert að gera, fram að miðdeginu? Það er stormur í aðsigi, en það helzt logn fram eftir morgninum. Eg hef komizt eftir því hvar bonit-fiskurinn heldur sig. Smith kinkaði kolli og lagði öxina upp við girðinguna. Síðan fylgdi hann Tetahiti niður eftir stígnum, sem lá niður að Boun- ty-flóanum. Þeir fóru fram hjá húsum Mills og Mc Coy og stönzuðu hjá húsum blökku- mannanna. Karlmennirnir voru farnir til vinnu sinnar í skóginum. Smith talaði við Moetnu meðan félagi hans náði í veiðar- færin. Hutia sást hvergi. — Líttu á, sagði Tetahiti. — Við höf- um smokk í beitu. Ég veiddi tvo í gær- kvöldi. Það var logn á flóanum. Tahiti-bú- inn tók nokkra aflanga steina, sem hver um sig vógu um þrjú pund og fleygði þeim upp í minnsta bátinn. Litlu síðar voru þeir komnir út fyrir skerin og reru í norðvest- ur. Tetahiti leit til baka og athugaði stefn- ima frá landi. Þegar þeir voru komnir um það bil mílu undan, skipaði hann að leggja upp. — Hér er staðurinn, sagði hann um leið og skriðinn dró af bátnum. — Eg hef at- hugað fuglana í marga daga; það er hér sem fiskurinn leitar upp á yfirborðið eftir fæðu og fer niður í djúpið til að sofa. Þeir höfðu livor um sig 200 faðma langt færi. Við annan endan á því var öngullinn festur, en hinn endinn var bundinn í bátinn. Þeir settu loeitu á önglana og bundu steina við færin. — Við skulum reyna á 100 föðmum, sagði Tetahiti. Smith lét steininn síga niður með síð- unni á bátnum, og færið rann út þar til kom að hnút, sem var á því, þá kippti hann í það og byrjaði að keipa. Sólin var komin liátt á loft. En lítlitið í norðrinu var ískyggilegt. Það fannst ekki minnsti andblær, og jafnvel svona árla morguns var hitinn þvingandi. — Eg spái því, að hann hvessi, sagði Tetahati. Smith kinkaði kolli. — Clnistian heldur það líka. — Þú liefur næmt eyra, sagði Tetahiti. — Þú talar okkar mál eins vel og við sjálfir. — Ég hef lært mikið af þér. Hvaða dag- ur er núna, — hvaða nótt vildi ég segja? — Maitu. í nótt verður Hotu, þegar tunglið er komið upp og sólin gengin undir. Smith hristi undrandi höfuðið. — Þetta get ég aldrei munað. Við hvítu mennirnir þurfum aðeins að læra nöfn á sjö dögum vikunnar, en þið þurfið að læra nöfnin á öllum tuttugu og átta tunglnóttunum. — Já, og fleira! Ég skal fræða þig dá- lítið um Maitu. Á þeirri nóttu er gott að gróðursetja taro og bambus. Hún er nótt

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.