Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Blaðsíða 38

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Blaðsíða 38
122 PITCAIRN-EYJAN N. Kv. úr sveit, hún bjó þar þangað til faðir minn var svo heimskur að fara til London og leita gæfunnar þar. Sveitalífið er mér í hlóð borið. Þó að þið færuð öll héðan og eg inætti velja á milli þess að fara, eða vera kyrr, þá yrði eg eftir með konu minni og mundi enda daga mína hér. Christian brosti. — Það gleður mig að hafa þig hérna. Það væri gaman, ef við gæt- um séð tuttugu ár fram í tímann, heldur þú það ekki? Að þeim tíma liðnum væru hér stórar ekrur, ný hús og hörn — mörg hörn vona eg. — Og þú ert faðir fyrsta barnsins, sem fæðist hér. Jenny kom í dyrnar með mikið fiskfat í hendinni. Hún brosti til þeirra og kallaði á Balhadi til þess að hiðja liana að hjálpa sér við að leggja á borðið. Stuttu síðar stóð Smith upp til þess að kveðja. — Beiddu Williams að koma niður að flóanum síðari hluta dagsins, sagði Christi- an. Við þurfum að fá alla mennina til þess að lijálpa til að setja bátana, svo að þá taki ekki út. Stórar norðanöldur brotnuðu á klettun- um, þegar Smith lagði af stað yfir fjalls- hrygginn. Hitinn var óþolandi, þó að loft væri skýjað, og hann vissi að ekki mundi Jíða á löngu þar til hvessti. Williams mætti lionum í kofadyrunum. — Komdu innfyrir Alex. Hvað er það, sem þú kemur með .... fiskur? Það hlýt- ur að hafa verið feiknastór skepna? Lof- aðu mér a.ð hengja bitann upp. Kisa hefur þegar fundið lyktina af honum. Kötturinn mjálmaði, og Williams fór og skar dálítinn hita handa honum. — Það er dekrað við kisu, sagði hann. Heldur þú að hún veiði nokkurntíma rottu? Þegar þeir gengu inn í kofann, varð Smíth litið á gólfið og sá bambusgreiðu liggja rétt hjá rúminu. Á næsta augnabliki sparkaði Williams henni inn-undir það. Smiht leit í kringum sig og sagði: — Þitt hús er hezt hyggt og fallegast til að sjá. —- Hvað álítur þú um veðrið, Alex? spurði Williams. — Það verður fárviðri í nótt. Eg ætti víst ekki að dvelja hér lengur. Herra Christian óskar eftir að allir komi niður að Bountyflóanum, eins fljótt og hægt er. Hann er hræddur um bátana. Járnsmiðurinn kinkaði kolli. — Eg kem með þér, sagði hann. Vindur fór vaxandi af norðvestri með miklum regnskúrum. En á meðan þeir voru á leiðinni niður að flóanum gekk hann til norðurs og óx stöðugt. Það var áliðið dags, þegar fólkið lagði af stað upp hrekkuna áleiðis til bústaðanna. Bátarnir höfðu verið settir alla leið upp að klettunum, svo að það virtist ómögu- legt að nokkur alda, hversu stór, sem hún væri, gæti náð þeim út. Um nóttina hrast á ógurlegt fárviðri. Veðurgnýrinn og brim- liljóðið óx eftir því sem leið á nóttina, svo að það virtist ganga kraftaverki næst, að húsin skyldu standa af sér veðrið. Að lok- um rann dagur. Það var finnnludagsmorgunn. Um klukk- an 7 kom Smitli upp eftir stignum heim að húsi Christians. Svo virtist sem storminn væri að lægja, enda þótt kókóspálmarnir meðfram stignum svignuðu og laufkrónur þeirra blöktu eins og fánar í vindinum. Hann hvíldi sig öðru hvoru og sneri þá bakinu í veðrið. í hvert skipti, sem öldurn- ar brotnuðu á klettunum. var líkt og jörðin skylfi undir fótum lians. Að lokum komst hann þó heim að húsinu. Gluggahlerarnir á þeirri hlið hússins, sem áveðurs var, voru lokaðir, en dyr húss-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.