Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Page 43

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Page 43
N. Kv. BÆKUR 127 slátrað. Þau voru þvegin og skafin og bengd upp í greinarnar á banyantré. I sér- hverju húsi ríkti gleði og ánægja yfir því að þessu sameiginlega verki skyldi vera lokið, og nú gátu menn notið lítilsháttar hvíldar. í dagrenningu safnaðist fólkið saman hjá geymsluhúsinu og lét fjúka fyndni og gamanyrði, þegar það sá undirbúninginn undir hátíðahöldin um kvöldið. Hu og Te Moa áttu að annast matreiðsluna og voru þegar byrjaðar að grafa holur í jörðina fyrir hlóðir. A öðrum þeirra átti að steikja svínin, en á hinum átti að sjóða brauðræt- ur, taro og annað grænmeti. Mc Coy var að berja eitt svínslærið. — Gyðingum er bannað að borða ykkur og enginn sannur Skoti leggur ykkur sér til munns, en bíðið bara róleg, eg skal gera ykkur góð skil. Hann sneri sér að Quintal. — Hér er nógur matur handa okkur öllum, Matt. En okkur vantar eitthvað hressandi til að væta kverkarnar. Quintal hló, og um leið sást Christian á bugðunni á stígnum. Hann bar á hand- leggnum lítinn dreng, sem nú var átta mán- aða gamall. Maimiti gekk við hlið honum. Mc Coy snéri sér að honum og sagði: — Ætli það væri ekki hægt að fá hress- ingu í kvöld, herra? Aðeins einn lítinn handa hverjum? Christian hristi höfuðið. -— Við eigum fjórar flöskur eftir. Við vorum búnir að koma okkur saman um að nota þær fyrir meðul. — Já, herra, svaraði Mc Coy hryggur í bragði, — það er rétt, nú man eg það. Eg skal ekki nefna það framar. Framhald. Bækur Skarphéðinn 1910—1950 Ingimar ]óliannesson liejir skráð. Reykjavík 1955. — ísafoldarprentsmiðja. Ungmennafélögin eiga sér þegar mikla sögu. Vakning sú, er þau hrundu af stað á fyrstu áratugum þessarar aldar, hefir markað djúp spor í þjóðlífinu, og merkilegt er það starf, sem þau hafa unnið í félags- mála- og menningarlífi þjóðarinnar nú um hálfa öld. Full nauðsyn er á, að saga félag- anna verði skráð, og er nú hver síðastur um að ná til frumherjanna um persónulegar lýsingar af fyrstu stafsárunum. Héraðssambandið Skarphéðinn, sem er stærsta héraðssambandið innan U.M.F.Í., hefir nú riðið myndarlega á vaðið með minningarriti þessu. Eru þar rakin tildrög að stofnun sambandsins, og síðan starfs- ferill þess allur um 40 ára skeið. Sést, að þar hefir víða verið við komið, og mörgu þarflegu máli hefir sambandið lagt lið á liðnum árum, þótt hæst hafi borið þátttöku þess í íþróttamálum. Er frásögnin öll hin ljósasta, og skýrri mynd brugðið upp af því, hverju félagsskapurinn hefir orkað. Nokkrar sérstakar minningargreinar eru einnig í ritinu, en vel hefðu þær mátt vera fleiri. Fjöldi mynda prýðir ritið, og er all- ur frágangur þess snotur. Vonandi sjá fleiri sambönd ungmennafélaganna sér fært að láta skrá sögu sína jafn myndarlega og Skarphéðinn hefir gert.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.