Stjarnan - 01.01.1897, Qupperneq 20
18
UM STRAUMFERJUR.
Straumferjur eru að því leyti líkar svif-ferjum
að þær berast fram og aptnr yfir um, af afli
straumsins. En svo eru þær hentugri að því leyti,
að þeim má auðveldlega koma fyrir, alstaðar þar
sem þörf er íyrir nokkra ferju, ef annars straumur
ær uægilegur.
Á íslaudi væru straumferjur rajög nauðsyn-
legar á allar stærri ár og fljót. Þær mundu kosta
þar svo sem ekki neitt í samanburði við brýr, en
mundu fullnægja þar víðast hvar, hér um bil eins
og brýr, en jafnframt taka þeim ferjunefnum
(dráps-bollum), sem þar hafa tíðkast hingað til,
svo mikið fram, að þörfln fyrlr brýr mundi alveg
hverfa-
Straumferjur taka og dragferjum fram að því
leyti, að vinnu tilkostnaðurinn er svo miklu minni
árlega við straumferjurnar. Við dragferjurnar þarf
n.l. 2 menn stöðugt, og annað hvort hed eða uxa
að’auki; þar sem ekki þarf nema að eins eínn mann
vi'ð‘ straumfei’jurnar; en svo hafa dragferjurnar
þann kost fram yflr straumferjur, að þeim má koma
við hvar sem vera skal og einnig þar sem alveg er
straumlaust.
Straumferjur (sem og dragferjur) má hafa á
hvaða stærð sem vera vill eptir kringumstæðum.
En þó ættu þær ekki að vera minni en svo, að þær
geti flutt í einu, t. d. 2 hesta með hlöðnum vagni