Stjarnan - 01.01.1897, Page 55
51
FÁEIN ORÐ TIL FÓLKSINS.
Kæru íslendingar! Kaupendur þessa rits.
Stjarnan, þetta litla rit heilsar yður hér með
í fyrsta sinni á æfinni, bjóðandi >ður öllum gleði-
legt og farsællegt nýár!
Þetta er held ég hið fyrsta íslenzkst rit, til-
einkað verldegum málefnum, ótakmarkað, og þótt
þessi byrjun sé í smáum stíl, þá ætlast ég þð til að
hún gefi. heldur góðar vonir um framhaldíð.
En þetta rit er einnig hið fyrsta sérprentað rit
höfundarins. tíann vonast og eftir að því verði
tekið vel, eftir verðleikum, af öllu góðu fólki, svo
að því auðnist að vaxa að vizku og aldri, í því
augnamiði að geta orðið uppbyggilegt fyrir vora
litlu þjóð, sem er allra þjóða sízt fær um að hafna
upplýsingum um verkleg málefni. Það virðist því
vera ástæða til að vona að þetta litla rit verði kær-
kominn gestur á hverju einasta íslenzku heimili,
nú þegar á fyrsta árinu, í trausti þess auðvitað, að
fólki takist að færa sér það í nyt, til eigin hags-
munaog heilla.
Ritið er að sönnu eltki í höfðingjabúningi, eftir
nýjustu tízku-sniðum, í þetta sinn, og valda því
ýmsar óhjákvæmilegar orsakir, sem óþarft er að
telja upp hér. En svo er vonast eftir að menn af-
saki það vinsamlega, og láti það ekki valda nein-
um ágreiningi. Með því að búningurinn er líka
þokkalegur, þótt hann sé ekki ríkmannlegur, svo