Sjómannadagsblaðið - 04.06.1950, Blaðsíða 44
GULLFOSS
t f # # /
hið nýja farþegaskjp Eimshjpaféiags lslands
Vertu „Gullfoss“ velkominn!
Veittu gulli í landið inn;
rán með gulli roðna kinn
reyfi gulli feril þinn.
Það var mikið heillaspor stigið, þegar Eimskipa-
félag íslands var stofnað. Þá hófust hafsiglingar
okkar að nýju og við tókum aftur í okkar hendur
flutningana að og frá landinu og segja má, að frá
þeim tíma, hafi hagur landsins farið batnandi dag
frá degi.
Þegar Eimskipafélag Islands réðist í það, að
byggja sinn fyrsta Gullfoss, þótti það mikið í ráðist
með litlum fjármunum. Nú hafa gömlu skipin getið
af sér önnur skip ný af nálinni og hvert öðru
stærra. Þykir nú sumum, sem mikið sé í ráðist,
að eiga þau öll og reka, þótt ekki fylgi þeim skulda-
byrði. Við, sem nú lifum, eigum því láni að fagna,
að eiga nýjan og fagran skipastól, sem að miklu
leyti er byggður samkvæmt kröfu sjómannanna
sjálfra. Það verður því okkar sök, ef við ekki ber-
um gæfu til að reka þau svo ánægja og bættur
hagur hljótist af. Þá sógum við gálauslega þeim
arfi, sem okkur hefur hlotnast.
Það skipið, sem nýjast er og mestan metnað
vekur hjá þjóðinni, er Gullfoss, hið nýja og mikla
farþegaskip, sem erft hefur hið fagra og gæfuríka
nafn.
M.s. Gullfoss er byggður hjá Burmeister &
Wain A/S í Kaupmannahöfn og er fjórða skipið
er þeir byggja fyrir Eimskipafélag Islands síðan
stríðinu lauk. Hin eru „Goðafoss“, „Lagarfoss“ og
„Dettifoss“ öll um 1620 rúmlestir að stærð, en
Gullfoss er langstærstur, 330 feta langur og 3858
rúmlestir. Skipið hefur farþegarúm fyrir samtals
220 manns við bezta atlæti og lestarrúm skipsins
eru samtals 114.000 teningsfet, þar af 60.000 ten-
ingsfet frystilestar, sem eiga að geta haldið 18
stiga kulda þótt lofthiti úti sé 35 stig og sjórinn
25 stiga heitur.
Skipið er einskrúfuskip. Aðalvélin er Burmeist-
er & Wain 5000 hestafla, tvígengis Dieselvél, sem
Höf ii ðinngangur
á 1. farrými.
24 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ