Sjómannadagsblaðið - 04.06.1950, Síða 45
Skáli á
1. farrými.
getur knúð skipið 17% mílu á klukkustund. Hjálp-
arvélarnar eru 4 þriggja strokka Burmeister &
Wain, fjórgengis Dieselvélar, sem hver um sig
drífur 120 kw. rafal. Þessar vélar eru kældar með
fersku vatni, sem kælt er með sjó. Þannig er um
hnútana búið, að ef ein vélin er í gangi, að hún
heldur hinum heitum. Hver vél hefur sérstakan
úthlástur út um reykháfinn, en útblástrinum frá
aðalvél er hægt að beina inn á gufuketil, sem hit-
ar upp íbúðir skipshafnarinnar. Af öðrum vélum
má nefna 3 Freon-þjöppur, tvær 170 tonna sjó-
dælur, ein 170 tonna vatnsdæla, 30 tonna sjó-
dæla, tvær 170 tonna smurolíudælur, 30 tonna
eldsneytisolíudælur, 150 tonna kjölfestudæla, 20
tonna frárenslisdæla, sem einnig er tengd lesta-
dælu, neyðardæla, svalar loftþjöppur, skilvindur,
sjálfvirkur olíukyntur ketill, rennibekkur, bor-
vélar o. fl.
Eins og gefur að skilja, er skipið hið mesta
Völundar smíði, það tók 474 daga að byggja það,
og talið er að það hafi tekið 850.000 vinnutíma
að smíða skipið. I skipinu eru 6 þilför: Stjórn-
pallur með öllum hinum helztu siglingatækjum,
radar, sjálfstýriáttavitum og öðrum þeim öryggis-
útbúnaði sem beztur þekkist. Þarna er og íbúð
skipstjóra, stofa og svefnherbergi með baði, full-
Salur á
hl. farrými.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 25