Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 06.06.1971, Blaðsíða 16

Sjómannadagsblaðið - 06.06.1971, Blaðsíða 16
o. fl. Þeir sem leiðina velja eru þeir, sem viS stjórnvölinn standa. Byggja þeir ákvörðun sína á þeklcingu sinni, upplýs- ingum, fréttum o. fl. Á þessu sviði, sem svo mörgum öðrum sannast hið forn- kveðna: „Betri er krókur en kelda“. Þjóð eins og okkar, sem býr við lýðræðislegt stjórnskipulag, velur í kosningum þá, sem hún æskir að fari með stjórn þjóÖarskútunnar. Til þess eru margir kallaðir en fáir útvaldir. Á Alþingi eiga sæti 60 þjóðkjörnir fulltrúar. Meiri'hluti þeirra velur þá, er þeir telja bezta til að halda um stjórnvölinn hverju sinni. Þeir sem til veljast, þurfa oft að velja hina lengri leið en öruggari, þótt hið gagnstæða sé taliÖ af sumum vin- sælla á kosningavori, og áhöfn skipi og farmi, sé stýrt í hættu með sltku vali. Núverandi meirihluti á Alþingi hefur markað þá stefnu, sem hann telur skynsamlegasta til farsællar lausnar þessa sjálfstæðismáls íslendinga, með samþykkt þingsályktunar, sem ríkisstjórnin bar fram skömmu fyrir þinglök. Auk þessa kom fram álit minni hluta Alþingis (stjórnarand- stöðuflokkanna), sem fyrst og fremst marka sína sérstöðu með að ákvörðun um frekari útfærslu fiskveiðilögsögunnar skuli skilyrðislaust framkvæmd eigi síðar en 1. sept. 1972 og þá ekki neinn bilbugur á, þótt svo gæti horft þá, að lengra megi stíga, eða hvort slíkt spor á þeim tíma, geti skaÖaÖ svo við- skiptahagsmuni þjóÖarinnar, að illbærilegt verði. Að ekki sé talað um möguleika okkar til að vernda hina stórauknu lög- sögu okkar, sem þó verÖur að teljast höfuðnauðsyn. Ekki þarf léngi að skoða tillögu þessa til að sjá, að hún er algerlega út í hött 'hvað dagsetninguna varðar. VirÖist ein- göngu leitazt við í því vali, að ná fram samkomulagi óhkra skoðanahópa, sem annarsvegar vildu Ifrekari útfærslu þegar á þessu ári og hinsvegar þeirra sem hlíta vildu eigin skynsemi og forsjá þeirra, sem beztu yfirsýn yfir vandamálin hafa. Ennfremur er ljóst að kosningarnar í ár eiga sinn þátt í iþessu vali. Sá er þetta ritar átti nokkum þátt í mótun þeirrar tillögu, sem samþykkt var á Alþingi. Meðal þeirra raka, sem ég tel að ráða VerÖi í afstöðunni til málsins, eru þessi: Akveðið er að hefja nú þegar undirbúning að friðunarað- gerðum utan 12 mílna markanna, til vemdunar ungfiski. Þaiif sem fyrst að friða slík uppeldissvæði fyrir Norður- og Norð- Austurlandi, en sá fiskur, sem þar elzt upp veiðist við suður- ströndina, þegar hann 'hefur náð vissu þroskastígi. Og raunar þarf enn frekari friðunaraÖgerÖir innan 12 mílna markanna, en framkvæmdar hafa verið tíl þessa, t. d. þarf að friða hrygningarsvæði við suðurströndina, meðan hrygning stendur yfir, eins og sjómenn og útgerðarmenn í Vestmanna- eyjum lögðu tíl fyrir 15 ámm. Skýrt keimur fram í samþykkt Alþingis, að ef um verulega sókn erlendra veiðiskipa verður að ræða á landgmnnsmiðin, beri að færa fiskveiðilögsöguna út með einhliÖa aSgerðum. Og er þá ekki miðað við neina dagsetningu hvorki á árinu 1972 eða 1973. Þá má ekki gleymast að við erum meðal þeirra þjóða, sem á þingum Sameinuðu þjóðanna hafa lagt mikla áherzlu á hafréttarráðstefnuna 1973. Hlálegt er í sömu andrá og við biðjum um ráðstefnu þessa, sem á að finna lausn á margskonar vandamálum sem oltkur og fjölmargar aðrar þjóðir varða, eigi að taka einhliÖa ákvörð- un um útfærslu á ákveðnum degi nokkrum mánuðum áSur en ráSstðfnan verSur haldin: Árið 1958 var beðið með útfærslu fiskvciðilögsögunnar, unz svipaÖri ráSstefnu, sem þá var haldin lyki. Því ðkki nú, samfara þeim miklu varrúðarráðstöfunum, sem að framan er getíð umr I minum huga er meginröksemd þess, að tímasetja ekki út- færsluna strax á þessu stigi málsins, að tíminn vinnur með okkur í þessu mikilvæga méli. Ótrúlegar breytingar hafa orðið á síÖustu misserum á viðhorfi þjóða til nýtingar landgrunnsins, hafbotnsins og jafnvel einnig sérstöðu strandríkja sem okkar. Hafsbotni heilu hafanna hefur verið skipt upp milli að- liggjandi strandríkja vegna nýtingar á olíu og jarðgasi, sem þar kann að finnast. Við megum ekki hrinda Ifrá okkur stuðningi neinnar þjóðar með fljótfærnislegum aðgerðum. Hvað mengun hafsins viðkemur, er að vísu áferðarfallegt að setja 100 mílna „mengunarlögsögu", en slík „vörn“ getur verið næsta lítilsvirði fyrir fiskimið okkar, ef hættulegum efnum er steypt í hafið í enn meiri fjarlægð, en á svæðum, hvar hafstraumar geta tekið þau og borið að ströndum íslands. Meginmál hlýtur því að vera friðun háfsvæða og hafa eins og þegar er unnið að. Að síðustu, en ekki sázt, verður að stórauka landhelgis- gæzluna með nýjum flugvélum og skipum, starfsaðstöðu hennar í landi þarf að bæta, svo mætt verði auknum verk- efnum vegna væntanlegra friSunaraðgerða. í því sambandi ber að nefna nauðsyn staðarákvörðunarkerfis (t. d. Decca), öllum skipstjórnarmönnum til öryggis tdð staðarákvarðanir sínar, s\'o lögum og reglum verði framfylgt. f greinarkorni þessu hefur verið drepið á nokkur atriði, sem í huga undirritaðs vega þungt í þessu lífshagsmunarmáli íslenzku þjóðarinnar, en mörgu er sleppt. Að sjálfsögðu ber að harma að pólitísku öflin í landinu skyldu eigi ná fullri samstöðu um framkvæmd þess og það skuli dregið inn í póli- tískt dægurþras. En hinu ber að fagna, að þjóðin virðist nú einhuga um, að; stíga á næstunni sitt þýðingarmesta skref í því málinu, sem hæst ber í sögu þjóðarinnar síðan lýðveldið var stofnað 1944. Pétur SigurSsson. 2 SJÓMANNADAGSBLÁÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.