Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 06.06.1971, Blaðsíða 36

Sjómannadagsblaðið - 06.06.1971, Blaðsíða 36
verðum. við að dreifa 'hinum ýmsu tækj- um um alilan sikólann, allt ifrá kjallara og upp í turn ihússins, og víða er ill- mögulegt að komast að þeim. Nú horfa húsnæði9mál slkólans til bóta. A síðustu fjárlögum var gert ráð fyrir þokkalegri ’fjárhæð til að hefja byggingu við skólann og væntum við okkur mikils af þessum vilja hjá ráð- andi mönnum til að bæta úr brýnni þörf í húsnæðismálunum. — 1 vebur var lagt fram á Alþingi ifrumvarp til nýrra laga um Stýrimanna- skólann. Hvert er álit þitt á þessu frum- varpi? — I>ví miður dagaði þetta frumvarp uppi á nýaifstöðnu þingi. Þjóðhagslega hefði iþó ekki verið síður þörf á að af- greiða bað en annað frumvarp um skóla- mál, sem hlaut fullnaðarafgreiðslu á þinginu. Ég tel að þar sé um ýmsar ágætar nýjungar og breytingar að ræða varð- andi fræðslu skipstjórnarmanna í nú- tíma þjóðfélagi. Bkki ihvað sízt að því er snertir alla tækni og hagkvæmni í nám- inu. Gert er ráð fyrir megin fyrirkomu- lagsbreytingu og samræmingu. — Nú h'ljóta nemendur viss réttindi dftir hvert ár. Það er til dæmis síður hætta með því lagi, sem ráð er fyrir gert í frum- varpinu, að menn staðni við vissa teg- und skipa. Annað er það, að nemendur nýta9t fiskiflotanum sem yfirmenn með- an á náminu stendur, þar sem þeir öðl- ast nökkur réttindi strax eftir fyrsta stig námsins. Þeir fá sem sé með þess- um hætti raunhæfa reynslu í stjórn um borð í fiskiskipi áður en öllu skólanám- inu lýkur, og ættu að geta af þessum forsmekk ráðið við sig, hvort þeir vilja gera ylirmennsku á Ifiskiskipum að ævi- starfi eða ekki að námi loknu. Það er oft að menn eru ágætir hásetar og dug- andi sjómenn og fara í skólann og jafn- vel ljúka þar námi með láði, en svo kemur á daginn um seinan, að þeir eru ekki vel ifallnir til að vera yfirmenn, og nýtist þá alls ekk i þetta nám með þeim hætri, sem þeir ædluðu sér. Eitt er það atriði í þessu frumvarpi, sem ég tel sérlega mikils um vert, en það er, að gert er ráð fyrir að krafizt verði námSstigs við inntöku í Stýri- mannaskólann. Það hefur háð kennsl- unni stórlega að vera með nemenda, sem aðeins 'hefur lélegan barnaskóla að baki, við hliðina á stúdent, þó að oft hafi komið fvrir að barnaskólapilturinn hafi borið hærra 'hlut á prófi. 1 frumvarpinu er gert ráð fyrir gagn- ifræðaprófi til inngöngu í skólann, en sé það ekki fyrir hendi, þá er ætlunin að 'halda námskeið og síðan inntöku- próf fyrir þá, sem ekki hafa lokið gagn- fræðaprófsstiginu. Þetta auðveldar allt áframhald, því að ég eifast um að nokkur skóli hér á landi leggi jafnmikið námsefni á og Stýrimannaslkólinn fvrir nemendur sína á svo skömmum nám9tíma. Námið er sem sagt stutt en strangt í Stýrimanna- skólanum. Þess ber og að geta, að eng- inn skóli veitir nemendum sínum rétt- indi, sem jafnmikil ábyrgð fylgir og einnig ábati, og þessi skóli með sinn stutta námstíma. Það er mín bjargfasta skoðun, að þjóð- inni beri að gera vel við Sjómannaskól- ann, þar sem þangað sækir hluti af kjama sjómannaistéttarinnar, ungir og þróttmiklir menn, sem vilja helga sig iþessu þjóðnytjastarfi — að veiða fisk og sigla. —• Þessir menn eiga fyrir höndum að verða snarasti þátturinn í að halda slagæð þjóðarinnar gangandi. — Þið eruð farnir að fara með nem- endur út á sjó og sýna þeim ýmislegt um borð. Hvaða raun finnst þér þessi nýjung í kennsluháttunum hafa gefið? NÚ ERU HÚSIN TVÖ ! 100 bílar OG ÓTAL HÚSBÓNAÐAR- VINNINGAR SALA HAFIN VERÐ ÖBREYTT KR. 100 Á dae 22 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.