Sjómannadagsblaðið - 06.06.1971, Blaðsíða 34
50 ára nemendur.
verið veittar 7 milljónir til nýrrar 'bygg-
ingar undir tækjakennslu iFyrir Stýri-
mannaskólann og Vélákólann. Þá gat
'hann þess, að iheildarskipulag hefði ver-
ið gert á lóð Sjómannáskólans.
Að þessu sinni lauk 31 nemandi far-
mannaprófi 3. stigs og 33 fiskimanna-
prófi 2. stigs. Efstur á farmannaprófinu
var Sævaldur Elíasson, 7,56, og hlaut
hann verðlaunabikar Eimskipafélags ís-
lands, Farmannabikarinn. — Sævaldur
lauk í fyrra fiskimannaprófi frá Stýri-
mannaskólanum í Vestmannaeyjum og
blaut hæstu einkunn þar, 7,73. — Bfst-
ur á fiskimannaprófinu var Sturlaugur
Stefánsson, 7,73, og hlaut hann verð-
launabikar Öldunnar, Öldubikarinn. —
Hámarkseinkunn er 8. — Bókaverðlaun
úr Verðlauna- og styrktarsjóði Páls Hall-
dórssonar skólastjóra, hlutu þeissir nem-
endur, sem aUir höfðu hlotið ágætis-
einkunn. Ur farmannadeild: Aibert
Gunnarsson, Baldur Magnússon, Guð-
mundur Ragnarsson, Helgi Magnússon,
Sævaldur Elíasson og Sævar Jónsson.
Or fiskimannadeild: Guðmundur Jó-
hannsson, Sigurður Jónsson, Stefán
Valdimarsson og Sturlaugur Stefánsson.
Skipstjórafélag Islands veitti bóka-
verðlaun fyrir hámar'kseinkunn í sigl-
ingareglum við farmannapróf. Hlaut
Sævaldur Elíasson þau.
Skólastjóri ávarpaði síðan nemendur
og óskaði þeim til hamingju með prófið.
Ræddi hann nokkuð ábyrgð og skyldur,
sem skipstjórastöðu fylgja. — Einnig
minntist hann á stækkun fiskveiðilög-
sögunnar, sem væri mál málanna í dag
fyrir alla þjóðina. Með stækkun hennar
og skynsamlegri nýtingu veiðisvæðanna
ættu veiðimöguleikar að geta aukizt stór-
lega. Að lokum þakkaði hann nemend-
um samveruna og óskaði þeim gæfu og
gengis í framtíðinni.
Af hálfu eldri nemenda tóku til máls:
Egill Jóhannsson fyrir 55 ára próf-
sveina. Færðu þeir skólanum að gjöf
ritsafn Guðmundar Kambans.
Nikulás Jónsson hafði orð fyrir 50 ára
prófsveinum, Andrés Finnbogason fyrir
30 ára, Jónas Þorsteinsson fyrir 25 ára,
Pótur Sigurðsson ifyrir 20 ára og Guð-
bjartur Gunnarsson fyrir 10 ára.
Þrjátíu ára prófsveinar færðu tækja-
sjóði skólans fjárupphæð, en hinir allir
Styrktarsjóði nemenda.
Skólastjóri þakkaði góðar gjafir og
þann hlýhug, sem að baki þeim lægi.
Jafnframt þabkaði hann Alþingi fvrir
framlag til Styrktarsjóðs nemenda á fjár-
lögum J>essa árs.
Þá þakkaði hann gestunum komuna
og kennurum stöif iþeirra á liðnu skóla-
ári og sagði skólanum slitið.
Til lesenda:
Sjómenn og aðrir velunnar hinum öldruðu sjómönnum, sem nú hafa
rennt fleygi í naust, og dveljast á Hrafnistu, eftir langan og erfiðan
starfsdag, sumir hverjir með léttan arð, eftir mikið brautryðjanda- og
baráttustarf, sem er undirstaðan að því er við nú stöndum.
Munið að sjóður, sem stofnaður var fyrir nokkrum árum til styrktar
þeirn (Styrktarsjóður Vistmanna Hrafnistu, DAS), tekur á móti áheit-
um og öðrum peningagjöfum, og er þeim veitt móttaka á skrifstofu
Hrafnistu, DAS, skrifstofu Sjónrannafélags Reykjavíkur og Tómasi Sig-
valdasyni, Brekkustíg 8, Reykjavík.
Allar slíkar gjafir til sjóðsins eru undanþegnar skatti.
Ennfremur eru seld minningarkort til styrktar þessum sjóði á eftir-
töldum stöðum:
Happdrætti DAS, aðalumboð, Vesturveri Sími 17757
Sjómannafélagi Reykjavíkur, Lindargötu 9, Rvík — 11915
Skrifstofa Hrafnistu, DAS, Laugarási — 38440
Guðna Þórðarsyni gullsmið, Laugavegi 50, Reykjavík — 13769
Sjóbúðin, Grandagarði, Reykjavík — 16814
Verzlunin Straumnes, Nesveg 33, Reykjavík — 19832
Tómasi Sigvaldasyni, Brekkustíg 8, Reykjavík — 13189
Blómaskálinn við Nýbýlaveg — 40980
Umboð Happdrætti DAS, Hafnarfirði
Einnig eru þau seld í flestum kaupstöðum landsins. Munið, að spyrja
um þessi minningarkort, ef þið þurfið að senda slík.
\_________________________________________________________________________
20 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ