Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1972, Side 15

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1972, Side 15
Útgefandi: SJÓMANNADAGSRÁÐ Ritstj. og ábyrg&arm.: Halldór. Jónsson. Guðm. H. Oddsson. Ritnefnd: Guðlaugur Gíslason, Júlíus Kr. Ólafsson, Halldór Jónsson. ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN HF. Fiskimið okkar — fjöregg þjóðar- innar ........................... 1 Gjafir til Hrafnistu ............. 2 Sjómannadagurinn í Reykjavík 1971 ............................ 3 Víðförull sjófarandi ............. 6 Hrafnista — Dvalarheimili aldraðra sjómanna ....................... 12 Sumardvalarheimili Sjómannadags- ráðs ........................... 15 Kiwanisklúbburinn Hekla ......... 16 Sjómannadagurinn í Grindavrk .... 18 Hér hef ég al!a ævi mína dvalið .. 19 Kveðja og þökk yfir hafið......... 22 50 sjómílna landhelgin............ 24 Fernando Magellan ................ 26 Sjóslys og drukknanir ............ 28 Svarti fresskötturinn ........... 29 Lási kokkur...................... 35 Sjómannadagurinn á Hellissandi .. 39 Alyktun Sjómannadagsráðs ........ 40 Mexíkó gæti orðið stórveldi í fisk- veiðum ......................... 41 Viðkvæma fómardýrið ............. 44 ForsíSumynd at landgrunni íslands, sjá einnig skýringarmyndir í opnu blaðsins. Sjómannadagsblaðið 4. júní 1972 — 35. árgangur. PÉTUR SIGURÐSSON, FORM. SJÓMANNADAGSRÁÐS: Fiskimið okkar - Fjöregg þjóðarinnar íslenzka þjóðin fagnaði einhug og samstöðu, sem fram kom á Alþingi, þegar lokaatkvæðagreiðsla um út- færslu fiskveiðilögsögunnar fór fram. Þessi samstaða sýnir umheim- inum betur en nokkuð annað, að þrátt fyrir ágreining um fram- kvæmd málsins, eru íslendingar samstilltir í þessu lífshagsmunamáli sínu og munu snúa bökum saman í þeirri baráttu sem er framundan við erlenda ásælni og yfirgang. Þessi niðurstaða breytir þó ekki undrun fjölmargra á afstöðu meiri- hluta Alþingis til tillögunnar um að miða ytri mörk fiskveiðilögsögunn- ar við 400 metra jafndýpislfnuna, þó hvergi nær landi, en 50 sjómílur frá grunnlínum. Flestir hafa hald- ið að fyrirsjáanleg óþægindi vegna útfærslu í 50 mílur myndu ekki auk- ast svo, að ekki væri réttlætanlegt að stíga þetta spor strax í haust, en fyrir því eru mörg rök, ekki síst eftir tilboð ríkisstjórnarinnar til Breta og Vestur-Þjóðverja um um- þóttunartíma innan 50 mílnanna, ef samkomulag yrði um útfærzluna. Úti fyrir Vesturlandi og Suð-aust- urlandi eru ákaflega mikilvæg fiski- mið utan 50 mílna jafndýpislínunn- ar. Því er haldið fram og ekki að ástæðulausu, að þessi mið verði í mikilli hættu eftir útfærsluna, því ljóst má vera, að hin erlendu veiði- skip, sem nú verða á svæðum milli 12 og 50 mílna, verða væntanlega að hörfa þaðan þann 1. september. Þessi floti mun sækja miklu frekar en áður á þessi mið fyrir Vesturlandi og Suð-austurlandi. Um fleiri rök er að ræða. Þótt flestar þjóðir, sem fært hafa út landhelgi sína hafi miðað við mílur m. a. vegna þess að land- grunn þeirra er tiltölulega lítið, — höfum við íslendingar talið, að á alþjóðavettvangi mundi landgrunns- stefnan vera okkur jafn sigurstrang- leg og fjarlægðarviðmiðunin ein. Byggist sú skoðun, auk okkar fyrri raka, á þeirri viðurkenndu reglu nú, að ríki eigi hafsbotninn úti fyrir sínu landi, hafsbotninn á landgrunninu og öll auðæfi sem í honum eru og á. Þessa reglu verður nú að telja SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 1

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.