Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1972, Síða 21

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1972, Síða 21
in safnast því saman við báða enda skurð- arins og bíður annar hópurinn meðan hinn siglir skurðinn. Þegar Sigurður kom að skurðinum á vesturleið, sá hann sér færi á að skjótast inní röðina, sem beið og það gekk allt ágætlega nema hann hlaut mikl- ar kárínur fyrir hjá Aröbunum, sem höfðu afnumið þessa reglu Bretanna að leyfa skipum að sigla á eigin ábyrgð, enda hafði öllum refcstri strax 'hrakað eftir að Arabarnir tóku við stjóm skurðarins. Það var einnig á Hvítanesinu, sem skipsmenn Sigurðar fundu fallbyssu á botni víkurinnar, sem þeir lágu á við eyjrma Ibiza í Miðjarðarhafinu. Þetta var mjög fom fallbyssa, frá tíð Máranna á Spáni og öll úr kopar, en slíkar fallbyss- ur em nú orðnar mjög fáséðar og verð- mætar. Skipshöfnin ætlaði að bjarga fall- byssunni og flytja hana heim sem gjöf til Hrafnistu. Þeim tókst að ná fallbyssuni um borð, en þá komu hermenn Francós með alvæpni og heimtuðu fahlbyssuna, sem var búin að liggja þarna við bæjardyrnar hjá þeim öldum saman og ekki á meira dýpi en svo, að íslendingarnir köfuðu niður að henni í einum saman adamsklæðunum. Islend- ingamir urðu svo reiðir, að þeir hýfðu byssuna aftur fyrir borð og létu hana falla if sjóinn, þrátt fyrir að Spánverjarn- ir miðuðu á 'þá byssunum. Byssan hefur ekki fundizt síðan. Þannig hefur Sigurður alltaf verið að verða sér útum ævintýii með einum eða öðrum hætti. Hann er maður mjög at- hugull, og forvitinn um siðu og háttu framandi þjóða og þjóðflokka, og þegar aðrir fara máski á skemmtistaði fer hann í nokkurs konar landkönnunarleiðangra með myndavél, því að hann er alger bind- indismaður og gengur því ekki á öldur- hús í erlendum hafnarborgum. Hann sigldi með togarann Agúst út til Grikklands, en þangað var hann seldur. I stað þess að taka flugfar heim, fékk Sig- urður sér bíl og ók að vetrarlagi norður alla Evrópu og fór um Júgóslavíu og Alpana og eins mörg þjóðlönd og hann gat á leiðinni. í annað sinn var það, að hann í sumarfríinu sínu leigði sér fjöl- sky’duvagn (trailer) og ók suður allt England og fór síðan yfir til meginlands- ins og fór þar um mörg lönd. Sigurður var sem sagt ekki lengur neinn heimanlingur þegar hann lagði upp í sína frægustu og lengstu reisu til þessa. Og hefst nú frásögn hans sjálfs, en Sjómanna- dagsblaðið náði tali af honum, þegar hann var staddur hérlendis í skyndierindum í haust að var. SSfe Gamall draumur rœtist, og gott er að eiga góSa vini. Mig hafði alla mína ævi dreymt um að eignast bát sem ég gæti siglt á milli landa til að skoða mig um. Eg var reyndar löngu orðinn úr- kula vonar um, að þessi draumur rættist nokkum tímann, þar sem ég var orðinn fjölskyldufaðir og ekki af minna taginu, því að börnin voru orðin sex. Svo var það, að þegar ég fór af Haferninum, að ég frétti að Sæ- björg gamla, það góða og mikla happaskip, sé komið á sölulista en óhægt sé að selja hana, þar sem hún fái ekki íslenzkt haffærisskírteini. Ég var það vel kunnugur skipum, að ég þurfti ekki nema líta á Sæ- björgu til að sjá að skipið var enn vel haffært skip og mikið eftir í því. Mér kom því í hug að kaupa hana og flytja hana undir Panama flagg. Olíuleit var þá mjög á döfinni víða um lönd og til hennar og ýmissa slíkra starfa var skipið vel faillið. Þetta varð að ráði og ég sigldi héð- an af stað um mánaðarmótin septem- ber—október 1969 og hélt til Eng- lands með alla fjölskylduna um borð. Sú ferð gekk prýðilega og ég hélt til Liverpool. Þar varð ég fyrir því óhappi á fljótinu, að straumur kastaði bátnum út úr rennunni og uppá bákkann og þar stóð skútan föst. Engin hætta var á ferðum og hefði skipið runnið hjálparlaust nið- ur á næsta flóði, en þeir vildu nú endilega draga skipið á flot, senni- lega eins og á daginn kom til að geta nælt sér í björgunarlaun. Mér varð það til bjargar í sjóréttinum, að einn af skipstjórunum á dráttar- bátunum á fljótinu var gamall kunn- ingi minn og hafði orðið til að draga bát þess skipstjóra á flot, sem dró minn bát út. Hann hafði a'ldrei far- ið fram á greiðslu fyrir þann greiða, en kom nú í réttinn og sagði skip- stjóranum, sem var að krefja mig um laun, að nú vildi hann fá greiðan endurgoldinn nema með því að hann sleppti öllum kröfum á mig. Og það varð. ■£4k Dvöl á Irlandi. Frá Liverpool fór ég til Cork á Irlandi og skipti þar um flagg. Það tók nokkuð langan tíma eða 16 daga. Það voru einhverjir hátíðisdagar í Panama og þá var allt lokað svo að þetta dróst í tímann. Ég kynntist þama allskonar fólki og það birtist frásögn af för minni, og þar kom það fram að Sæbjörg væri fyrrverandi landhelgisgæzlubátur, SJOMANNADAGSBLAÐIÐ 7

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.