Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1972, Síða 51

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1972, Síða 51
ingarnar og möluðu og kjöftuðu og möluðu. Mikið leiðast mér svona piparkerlingar, sagði ég og þá sagði frá Margrét: Steinþegiðu strákur, og reyndu eitthvað að vinna og gera ekki allt vitlaust, sem ég segi þér og passaðu þig að detta ekki með tert- una. En svo rak ég gangstéttina í tærnar og missti andlitið í tertuna, og þá hló Gunna gamla. Þær voru alltaf að vinna, og rétt gáfu sér tíma til að éta, þú skilur mig, litli Jón. Svo sagði Gunna á Birninum við stelpurnar: Hættið að kjafta og reynið að vinna, nóttina eigið þið sjálfar og þá getið þið kjaftað, og ef þið ekki vinnið þá farið þið haus- lausar út. Þær voru alveg agalegar, blessaðar kerlingarnar. Svo er ekk- ert meira með það. 8. Síðan heiti ég Lási. Jæja, svo segir frú Margrét við mig: Lási minn, farðu til hans Steina þar sem bílstjóramir drukku kaffið, og náðu í eina flösku af viskí. Svo fómm við upp að Mosfelli og fylltum prestinn, hann séra Hálfdán sáluga, en hann var ekki með okkur hann Kiddi-Jón, sem keyrði forsetann, gamla og nýja. Jæja, ekkert meira með það. Svo segir frú Margrét: Nú vill strákskömmin fara að þvæl- ast út á sjó, en ég er búin að ala hann upp í átta ár og vil ekki sleppa honum, hann er orðinn svo laginn við þetta, hann Lási. Þá segir séra Hálfdán sálugi: Hver skírði hann Lása? Við Anton, frændi minn kokk- ur, segir frú Margrét, komum okk- ur saman mn að spyrja móður hans, hvort henni væri ekki sama, hvort við kölluðum hann Lása. Jú, jú, sagði hún. Svo héldum við bara gilli og skelltum kampavíni yfir hausinn á stráknum. Síðan heiti ég Lási. 10. Kosningamar og greyið hann Pétur. Nú, síðan var ég hjá Angantý, frænda mínum, og svo hitti ég Ragn- ar frænda minn í Þórscafé. Og ég fór með Ragnari heim og svaf í svefnpoka í stofunni á Sóllandi, og eftir það fór ég aldrei út þaðan. Og svo vann ég hjá honum í gamla Þors- café og í Vaglaskógi hjá Mæju kokki í þrjú sumur. Ég get ekki hugsað mér betri mann en hann frænda og hana Júllu. Þau eru alveg dásamleg. Eg á marga vini, sem allir koma vel fram við mig, eins og þú sást í af- mælinu mínu, Jón litli, ég fékk fullt af gjöfum og skeytum, sem greyið hann Pétur las upp, og fullt hús af gestum, hún frá Margrét forstöðu- frú og hann Jóhann, sem kennir prestunum og fullt af fólki. Jæja, svo er ég líka á Dvalarheimilinu á vet- urna, hjá Pétri greyinu, og hann sendi prívatbíl hingað á Val'höll, til þess að láta mig kjósa í sumar og ég sat aftur í eins og fínn maður. Svo kaus ég uppi í Dvalarheimili, og þar var greyið hann Pétur að vinna, á skyrtunni, alveg agalega duglegur, en svo sagði Þór mér að Pétur greyið hefði tapað, en það var ekki Pétri að kenna, hann var alltaf að vinna. Hinir hafa bara ekki verið nógu dug- legir. Eg kaus alveg rétt. Hann Magnús yfirkokkur klippti út fyrir mig merkið hans Pétur úr blaðinu. Jæja, svo sat ég við háborðið á Sjó- mannadaginn, guð minn almáttug- ur, það var alveg dásamlegt, ég var kófsveittur, það voru ráðherrar og allur djöfullinn, og ég fékk nóg að drekka, við aðalborðið. Hann Pétur greyið er alveg agalega duglegur. 11. Nýdáið lík og Esjufjallið. En svo var það á Dvalarheimil- inu, að það kom til mín voðalega agalega merkilegur maður, alveg hámenntaður, og segir við mig: Heyrðu Lási kokkur. Já, segi ég, og sá að stelpa, sem var að þvo gang- ana blikkaði til mín og ég vissi að hann ætlaði eitthvað að spila með mig. Svo segir hann: Jæja, Lási kokkur, hvern ætli sé verið að jarða í dag? Eg vissi að það var eitthvað lík nýdáið, en ég lét ekki slá ryk í augun á mér og sagði: O, það er nú ekkert nýtt við það, daglegur viðburður, ætli það sé svosem nokk- ur sérstakur. Þá hló Ragnar frændi. Svo segir maðurinn, þetta var alveg stórmenntaður maður: Hvað heitir þetta fjall, Lási? og bendir á Esju- fjallið. Það veit ég ekkert um, sagði ég, en það er búið að vera hérna síð- an ég kom. Þá brosti Ragnar frændi og sagði: Þú ert alveg agalegur Lási. Jæja, þegar Haukur pressari var jarðaður, sagði ég við séra Þorstein: SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 37

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.