Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1972, Blaðsíða 56

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1972, Blaðsíða 56
ar. Það er einnig miklu meiri ástæða til að óttast að verða fyrir líkamsárás hér á götum eða í veitingastöðum Reykjavíkur heldur en í borgum Mexikó. Ég hef aldrei orðið vitni að ill- indum milli manna á borð við það sem hér er dagegur viðburður. Mér brá ekki lítið við alla þessa friðsemd, eftir að hafa alizt upp við þá skoð- un, að þessir Suðurlandabúar væru svo blóðheitir að búast mætti við hnífnum í skrokkinn, ef eitthvað bæri útaf. Knæpurnar eru alltaf þéttsettnar og þaðan hljómar söngur og hljóðfærasláttur en drukkinn mann á okkar mælikvarða sér maður aldrei koma þaðan út. Það gerir nú máske knæpulífið friðsamara að konum er bannaður aðgangur, svo að ekki spinnast deilur út af þeim. — Þeir drekka þó drjúgum, er það ekki? — Jú, það skyldi maður ætla, eftir því sem búlumar eru sóttar. Þær eru alltaf yfirfullar, en þeir virðast stunda drykkjuna öðm vísi en við gerum. Þjóðardrykkur þeirra er tequila, sem er rótsterkur drykkur og ódrekkandi, að því er mér finnst. Þetta er eldvatn. Ég var eitt sinn í veizlu, þar sem mér var borið tequila blandað tómatsósu til helminga í glasið. Það var rammur drykkur. Mexikanar eru veizluglaðir menn mjög, og nota hvert tækifæri til að efna til veizluhalda og tjalda þá jafn- Ámi Gíslason, kona og sonur. 42 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ an öllu sem til er á búinu. Þar þurfa afmæli maima ekki að standa á tug til að slegið sé upp afmælisveizlu. Ef kona fæðir bam er komin veizla í fjölskyldunni. — A hvaða stigi er sjávarútveg- urinn í Mexikó? — Mexikó gæti orðið annað Perú í fiskveiðum, ef síldveiðamar og ansjósuveiðamar næðu að þróast hjá þeim. En þeir hugsa helzt ekki mn annað en rækju. Bankar til dæmis lána ógjarnan útá aðrar veiðar. Það er mikil rækjuveiði og all-þróuð við Kalifomíuflóann. Rækjan þarna er miku stærri en rækjan hér, en mér skilst að það sé svipað verð á henni og hér gerist. Tæknilega eru rækiu- veiðamar all-þróaðar hjá þeim, þeir nota svo dæmi sé nefnt alltaf tvö troll og hafa notað þá aðferð í nokk- uð mörg ár. Þeir hafa togbómur sitt á hvort borðið, og þeir staðhæfa að betri árangur náist með tveimur vörpum litlum en einni stórri, jafn- vel þótt hún sé talsvert stærri en hinar tvær samanlagt. Þeir vom með svipaðar vörpur og hér eru notaðar, eða voru notaðar til skamms tíma, mér skilst að hér standi nú yfir ýms- ar breytingar á rækjutrollum, sem ég kann ekki deili á. En mexikan- amir þekkja semsagt bæði þá að- ferð sem við notum og tveggja vörpu aðferðina og geta því dæmt af reynsl- unni á sinni fiskislóð. Þeir segja, að tvær litlar vörpur, séu, auk þess Góðviðri 350—3G0 daga á ári. að vera veiðnari en ein stór, léttari í drætti sem auðvitað þýðir þá betri nýtingu vélaorkunnar og minni olíu- eyðslu. Heildarveiði Mexikana hefur ver- ið undanfarin ár 230—280 þúsund tonn að jafnaði árlega, og þegar þess er gætt að þetta er mestmegnis rækja, sem er létt í sér og lengi að fylla tonnið, þá er þetta ekki svo lítil veiði. — En hvað er að segja um síld- veiðamar? — Það er um að ræða þrjár teg- undir af síldfiski og tveimur teg- undum svipar mjög til okkar síldar, þeir kalla þær tegundir — crínúða og monterey — og svo er þriðja teg- undin ansjósan. Það eru óhemju- lóðningar þarna á síldfiski á stórum svæðum. Einu sinni lóðaði ég stanz- laust á kakkþykka síld á 30 sjó- mílna vegalengd í beina stefnu. Það var allan tímann torfa undir. Þeir trúa þessu varla sjálfir að síldar- magnið sé eins geysilegt og það er, því þeir eru á sama stigi og við vomm fyrir nokkrum árum, það er, þeir kasta bara á síld eftir auganu, þegar hún veður. Þeir vita sem sé ekki, fremur en við gerðum, af ann- arri síld en vaðandi síld. Þeir eru ekki með fiskileitartæki í bátum sín- um, nema þá kannski gamla neista- mæli til að mæla með dýpi. Torfum- ar koma uppá yfirborðið á nóttunni, þegar ekki er tungl og þá sjá þeir Togbóma á hvoru borði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.