Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1972, Side 58

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1972, Side 58
Viðkvæma fórnardýrið ... Terry greip andann á lofti. Flýtfu þér með koníakið. Við gefum ekki látið fimmtíu Terry Bixmy stöðvaði hvíta fallega bílinn sinn fyrir utan hið glæsilega hús sitt í Tanglewoor. Hann sat kyrr nokkra stund í bílnum og virti hús- ið fyrir sér, en stundi við þegar hann hugsaði til framtíðarinnar. Hann velti fyrir sér hvað yrði fyrst selt á uppboði, — húsið, bíll- inn eða húsgögnin. Allt var veðsett, sem hægt var að festa í skuld. Hann hafði enga þekkingu á sjónhverfing- um, og ef ekki kæmi til fjárhagslegt kraftaverk, liði ekki langur tími þar til annað fólk færi að aka um í hans bíl, og færi að baða sig í hans einka- sundlaug. Terry sá konuna sína, Miriam, hina fullkomnu mynd vellstæðrar konu, ljóshærða, bláeyga í léttum sumar- kjól koma hlaupandi út um aðal- dyrnar út að bílnum til hans. Svip- ur hennar varð aðeins þyngri þeg- ar hún sá hve hann var vonleysis- legur í andliti. — Þú hefur þá ekki fengið lánið, sagði hún með von- brigði í svip. — Þegar ég kom út frá lánaslofn- uninni, var mér ekki svo mikið sem mögulegt að fá lánaðan drykk á Chez Pierre, sagði hann úrillur. — Það var slæmt fyrir þig, sagði hún háðslega! Vertu nú ekki að stríða mér Miriam, ekki einmitt núna. Auðvitað ekki, svaraði kona hans illkvittnislega. — Ef þú vildir þó aðeins segja mér hvað við eigum nú að taka til bragðs. Eg veit það satt að segja ekki, svaraði Terry og stimdi þungan. — Nei, því trúi ég vel, svaraði kona hans, en af hverju biður þú ekki um kauphækkun? Terry stundi þungan, það er gjörsamlega von- laust, starf mitt hangir á þræði, og ég vildi helzt forðast að minna for- stjórann á að ég sé starfandi hjá fyrirtækinu. Honum varð litið upp til hússins, um leið og hann tautaði, en ég skal ekki gefast upp, þó svo að ég þyrfti að brjótast inn í banka til þess að ná peningum. Miriam hló hæðnislega. Það væri spaugilegt að sjá þig svona huglaus- an vesaling brjótast inn í banka! Svo bætti hún við, en það hefur borið að eitt vandamálið í viðbót. Það er kominn gestur til okkar, sem segist heita Griselda. Smávaxin snotur kvenmaður, einhver fjarskyld frænka þín. Griselda? ég þekki enga . . . ja biddu við, heitir hún máske Carrut- hers að eftimafni? Jú, svo sagði hún. — Eg hefi ekki séð hana síðan ég var smástrákur, sagði Terry. Mig minnir að hún væri lagleg ung stúlka, en málgefin og hélt allri fjölskyldunni uppi á slúðursögum úr nágrenninu. Loks held ég að hún hafi flutzt til New York, og saknaði hennar enginn. Ja, hún er nú komin hingað til okkar. — Hún kom í leigubíl fyrir 44 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.