Sjómannadagsblaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1972, Qupperneq 60

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1972, Qupperneq 60
ið í ljós að sér þætti gott að sofa frameftir. Kvöld eitt minntist Terry á pen- ingamál við Miriam eins og tilfall- andi í návist Grisöldu frænku. — Það var ágætt að þú skyldir minnast á peningamál, sagði Gris- elda frænka. — Eg hefi einmitt rætt við lögfræðing hér á staðnum. — Og ég vonast til þess að það sé ykkur gleðiefni að fá að vita, að ég hefi gert ráðstafanir til þess að yfir- færa verulega fjárupphæð frá sviss- neskum banka hingað — og gengið frá erfðaskrá, sem er mjög hagstæð mínum kæru ættingjum. Hún rétti sig yfir borðið og greip hendur þeirra. — Já, en . . . það var ekki meining mín . . . stamaði Terry . . . og gat svo ekki sagt meira af hugaræsingi. Gamla frúin virtist ekki veita því neina athygli, hve hann var uppnum- inn. Hún strauk hönd hans og sagði, . . . svona vinur minn fyrirgefðu mér að ég skyldi fara að minnast á það sorglega augnablik í framtíð- inni, þegar við verðum að skiljast að. Hún reis upp úr stólnum og sagði: Eg vildi gjarnan fá koníakstau.pið mitt inn að sjónvarpinu. Mér líður svo vel að sitja í rólegheitum við sjónvarpið og dreipa á koníakinu. Hún strunzaði út úr stofunni eins og drottning. Miriam leit á Terry og hvæssti að honum. Aulabárðurinn þinn, þarna eyðilagðirðu möguleikann á því að kreista út úr henni nokkrar krónur. Já, mér þykir það leiðinlegt, stundi Terry. Já, það er ástæða til. Ég hefi ekki gert annað í allan dag, heldur en að svara rukkurum í símann og fá þá til þess að bíða enn í nokkra daga með að láta uppboð fara fram á eign- um okkar, þar sem þú munir innan fárra daga fá peninga til þess að greiða þeim. Drottinn minn dýri, guð má vita hve mikils virði sú gamla er? Eftir þeim upplýsingum sem mér hefur tekizt að hala út úr henni, eru það um fimmtíu milljónir, sagði Miriam. Fimmtíu . . . Terry greip andann á lofti. — Flýttu þér með koníakið. Við getum ekki látið fimmtíu millj- ónir bíða eftir slíku. Um nóttina dreymdi Terry um feiknarlega búnka af peningaseðl- um, sem voru að mygla í sundur í neðanjarðarhvelfingu. Hann vakn- aði með höfuðverk og máttleysi í öll- um limum, sem varð til þess að hann kom klukkustund of seint í vinnuna hjá Hergeshimer & Co. Hann reyndi að smeigja sér svo lítið bæri á í skrifstofustól sinn lengst inni í horni. En móttökudaman Miss Buttons hlaut að hafa fylgst með hvenær hann kæmi, þvi hún gaf honum vís- bendingu um að tala við sig. Þér eigið að fara strax inn og tala við gamla nöldrunarsegginn. — Hann var héma frammi áðan að spyrja eftir yður. Terry varð órótt innanbrjósts. — Minntist hann nokkuð á hvað hann vildi mér? Eruð þér alveg frávita? En ef marka mætti af óvenjulega rólegri og kurteislegri framkomu hans, gæti ég trúað að hann byggi yfir ein- hverjum illgirnislegum ráðagerðum. Hergeshimer sat og horfði sak- leysislega á Terry. Og sagði svo með ísmeygilegri röddu, yður er sagt upp starfi hér. Terry skjögraði í átt að stól. En Hergeshimer sagði kuldalega, látið þér húsgögnin í friði, þér starfið hér ekki lengur. En herra Hergeshimer . . Það er ekkert fleira að segja Bix- by. Þér getið sótt þriggja mánaða laun hjá gjaldkeranum og farið svo. En herra Hergeshimer, ég á þó kröfu á skýringu frá yður. Kröfu á skýringu! Ef ég skulda yður eitthvað, þá væri það málshöfð- un fyrir að hefja mánaðarlega laun á fölskum forsendum vun vinnu. Og ástæður mínar fyrir uppsögninni eru margar. Þér emð fyrsta flokks dæmi um þá nútímahegðun, að afkasta hálfdags vinnu fyrir heildagslaun. Það eina sem þér hafið sýnt áhuga fyrir em launin og sérhlunnindi fyr- irtækisins. Starfið sem þér eigið að láta í té í staðinn, veldur yður leið- indum og um að gera að sleppa sem mest hjá því. Sá gamli snéri sér að bréfastafla á borðinu. — Terry var auðsjáan- lega ekki lengur til. Terry staulaðist heim, og hlamm- aði sér uppgefinn í stól í stofunni. Miriam sem hafði heyrt til hans kom inn. Mér hefur verið sagt upp starfi, stundi hann upp. Það má segja, að þú sért alltaf jafnheppinn, sagði Miriam háðslega. Láttu mig í friði. Ég hefi hugsað um þetta allt á heimleiðinni. Hvar er Griselda frænka? Hún er að háma í sig ávexti og drekka sherry inni í borðstofu. Gris- elda frænka tók sig sérlega vel út. Hún var í litríkum morgunslopp, sem hún sagði að hershöfðinginn hefði keypt handa henni í Alsír. Hún hellti rjóma í kaffið og leit á Terry. Nei, áttu frí í dag? Það er nú varla hægt að segja það . . . ég hefi misst atvinnuna. Það er nokkuð alvarlegt fyrir okkur Miri- am. Griselda frænka rétti úr sér og sagði með hátíðleika í röddinni. Þú verður að horfast í augu við erfið- leikana Terry. Fólk missir oft at- vinnu sína og fær annað starf næsta dag. Ef hershöfðinginn hefði verið hér staddur, hefði hann ráðlagt þér að líta á þetta sem tilvalið tækifæri til þess að útvega þér annað og betra starf. Terry leit á Griseldu eins og hann sæi hana í þoku, og hann átti erfitt með að stillla sig, að rjúka ekki upp í ofsabræði. Hann var orðinn leiður og þreyttur á þessu sífellda stagli um hershöfðingjann! — Eru það að- eins nokkur innantóm orð og þvæla, sem þú getur gefið okkur? 46 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.