Gripla - 01.01.1977, Page 50
46
GRIPLA
yfir ána ok hofðu þar fram málin er þeir kómu framast, svá at þeim
var óhætt, ok stefndi Snorri Gesti um víg Styrs. Þessi somu mál ónýtti
Þorsteinn Gíslason fyrir Snorra goða um sumarit á alþingi.’
Frásögn Eyrbyggju er hér stutt og ónóg og þvílíkust sem gert sé ráð
fyrir að lesendur þekki atburðina annars staðar að. Það kemur ekki
fram hver drap Víga-Styr fyrr en Snorri stefnir ‘Gesti’, en Gestur hefur
ekki verið nefndur áður, og ekki sést hvað honum gekk til drápsins, né
hversvegna höfðingjar í Borgarfirði veittu honum lið. Þess er ekki
heldur getið að hann héti öðru nafni Þorgestur. Sá ágripsbragur sem
hér er á Eyrbyggju hefur verið skýrður þannig (ísl. Fornrit IV xx-xxi)
að höfundur hennar muni hafa þekkt aðra frásögn af þessum tíðindum
og ekki hirt að endurtaka það sem þar stóð. Þá berast böndin að
Heiðarvíga sögu, en hana hafa menn á þessum stað einungis í endur-
sögn Grunnavíkur-Jóns; þó að telja megi með undrum hversu mikið
Jón mundi, er víst að hann hefur mörgu gleymt og það vissi hann
manna bezt sjálfur. Um atburðina við Hvítá segir hann að Snorri goði
‘reid framm i eina eyre sem i var midre ánne og qvad þat lóg ad tala
þar mále sinu sem madur kiæmest lengst ad hættu lausu, og stefnde
Geste um vig Styrs’ (Heiðarvíga saga, Kál. bls. 35). Viðbót um að Þor-
steinn Gíslason ónýtti málið fyrir Snorra goða á alþingi hefur Jón tekið
eftir Eyrbyggju, en ekki munað þetta atriði úr Heiðarvíga sögu, ef þess
hefur verið getið þar, sem líklegt má virðast.
Forrest Scott, sem hefur með höndum nýja útgáfu á Eyrbyggjutext-
um, hefur fyrstur manna gefið gaum handritinu ÍB 180 8vo, sem skrifað
er 1654 og fléttast inn í sögu Eyrbyggju síðar á öldinni, en ekki er hér
staður til að rekja það mál nánara. A þessari bók stendur í meginmálinu
að við Hvítá hafi Snorri goði stefnt ‘Gyssure’ um vígið. En utanmáls
hefur einhver I7du aldar maður, annar en skrifarinn, leiðrétt villuna
‘Gyssure’ og breytt í ‘Giesti’, og bætt við þessum orðum: ‘enn hiet Þór-
gjestur og önýttist málid firer þad’. Þetta hlýtur að vera svo að skilja
að vegandi Styrs hafi réttu nafni heitið Þorgestur (eins og hann er
kallaður í Ævi Snorra goða), en gengið undir nafninu Gestur; Snorra
varð á að nefna hann því nafni í stefnunni, og þessa skyssu notaði Þor-
steinn Gíslason til að ónýta málið.
Hér grillir í fomt atriði, og ekki önnur tilgáta líklegri en það muni
komið úr Heiðarvíga sögu; því sé bætt inn af manni sem lesið hafði þá
sögu eða heyrt lesna.