Gripla - 01.01.1977, Side 192
SAMTÍNINGUR
1
DROTTINHOLLUSTA
í Afmælisriti Jóns Helgasonar 1969 (bls. 48-58) er birt grein um
einkennilegt háttemi, sem þjónar og vinir þjóðhöfðingja viðhöfðu,
þegar höfðingi þeirra féll eða auðsætt var, að hann mundi verða drep-
inn af óvinum sínum. Oft er þess getið, að þessir vinir höfðingja síns
gengu svo langt fram í bardaga, að þeir féllu við höfuð eða fætur hans.
Dæmi um þetta eða þessu lík eru nefnd hjá ýmsum fornþjóðum, svo
sem Keltum, Indverjum, Grikkjum og Rómverjum, en stundum em
ekki nefnd höfuð eða fætur höfðingjans, heldur slíkt fall manns, að
það vitnar um óbilandi hollustu við liðsforingjann. Nánar um atvik að
þessu em tilgreind í fyrrnefndri ritgerð minni.
En sagnir af slíku hátterni eru líka til í frásögnum af Germönum,
bæði í rómverskum ritum og öðram yngri, germönskum eða skráðum
af mönnum af öðmm þjóðum. Þá koma næst frásagnir á ýmsum málum,
sem lúta að víkingaöld. Yngstu dæmin, sem ég hafði klófest vom þessi:
í Bjarkamálum, þýðingu Saxa hins málspaka (um 1200 eða litlu
fyrr), segir frá viðræðu þeirra Bjarka og Hjalta (hér vitnað í þýðingu
Jóns Helgasonar):
Hníg ég í hinzta sinn að höfði konungi látnum;
fá þér við fcetur hans leg, er fellur þú helsár til jarðar.
Sómir öðlinga sveit að sæfast með þvílíkum hætti
lúta við lojðungs hlið og lykja hann örmum í dauða.
Nú verður vitanlega ekki fullyrt, hvað í öndverðu stóð í kvæðinu, en
mjög líkleg er þýðing Jóns Helgasonar.
í kvæði í Hálfssögu segir, að Hrókur sé fallinn
frœkn at fótum
folks oddvita;