Eimreiðin - 01.03.1922, Qupperneq 32
96
PÁFASKIFTIN
EIMREIÐIN
arförin að hefjast eftir skamma stund. — Orfáir voru við
staddir, og var það að ósk hins látna páfa.
Klukkan 3 hófst athöfnin með því, að klerkar Péturskirkj-
unnar, með erkiprestinn, kardínála Merry del Val, í broddi
fylkingar, gengu í skrúðgöngu að kapellu hins blessaða sakra-
mentis. Líkinu var lyft og það borið fyrir skrúðgöngunni, fram
hjá standmynd heilags Péturs upp að altari, þar sem kardí-
nál-kamerlengo Gasparri stóð, haldandi á lyklunum, tákm
kirkjuvaldsins.
Með mikilli viðhöfn var líkið svo sett í þrjár kistur, hverja
utan yfir annarri. Með páfanum var lögð bókrolla, sem á var
letruð æfisaga páfans, og tvær silki-pyngjur, með sýnishornum
af myntum þeim, er slegnar höfðu verið í páfatíð Benedikts
XV. Síðan var kistan vafin rauðum silkiböndum, sem feS*
voru með 9 innsiglum.
Rofið hafði verið gat á gólfið fyrir framan altarið og geSn'
um það var kistan látin síga í 4 silki-reipum niður í graf'
kapellu heilags Péturs, en þar hafði páfinn kosið sér leS-
Merry del Val gekk því næst niður og veitti hinstu aflausnina,
og að því loknu var stór marmarasteinn látinn loka jarðneskar
leifar Benedikts XV. frá ljósi dagsins. Á hann er letrað me^
einföldum upphafsstöfum: CORPVS BENEDICTI PAPÆ XV-
(líkami Benedikts páfa XV.).
Júlíanski söngflokkurinn söng miserere meðan athöfnin stóð-
Páf akosning.
Á 10. degi eftir andlát páfans mega kardínálarnir koma
saman í hinni heimsfrægu sixtínsku kapellu til nýrrar páfa'
kosningar, eða in conclave, eins og það er kallað á máf1
kirkjunnar, latínunni.
Fimmtíu og níu klefar hafa verið útbúnir handa kardína
unum. Yfir hverjum klefa er tjaldhiminn, baldakin, fjólublan-
yfir klefum þeirra, sem kjörnir voru af Benedikt páfa c' ’
en grænir yfir þeirra, sem kjörnir voru af fyrri páfum.
kosningu lokinni eru tjaldhimnarnir teknir niður, allir nema
sá, sem er yfir klefa þess, er fyrir kosningu verður.