Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1946, Side 16

Eimreiðin - 01.04.1946, Side 16
XVI EIMREIÐIN Bækurnar, sem hver góöur bðkamaður þarf að eiga og lesa. 1. íslenzkir þjóðhættir, eftir Jónas Jónasson frá Hrafnagili. Fyrri útgáfa seldist á örskömm- um tíma, og bókin hefur verið ófáanleg síðan. Nú er komin út önnur útgáfa, að öllu leyti jafnvönduð hinni fyrri. Tryggið yður eintak strax. 2. Ljóðasafn Jóns Magnússonar. Ljóð Jóns Magnússonar eru þjóðkunn og viðurkennd að makleikum- Þau hafa komið út með nokkru millibili, og aldrei verið öll samtímis í bókaverzlunum. Þetta er góð og falleg útgáfa, sem er prýði á hverju heimili. 3. Sjósókn. Endurminningar Erlends Björnssonar á Breiðabólsstöðum, skráðar af séra Jóni Thorarensen. Þessi bók á samstöðu með íslenzkum þjóð- háttum og mun verða vinsæl um allt land. Hún er skemmtileg og falleg. h. Sálin hans Jóns mlns. Snilldarkvæði Davíðs er hér búið £ svo fallega umgjörð eftir Valgerði Ólafsdóttur, að þar er hvort öðru samboðið. 5. Biblían í myndum. Séra Bjarni Jónsson, vígslubiskup, hefur undanfarin ár unnið að því að búa undir prentun þetta verk. Myndirnar eru eftir hinn fræga franska listamann Gustave Doré, og til verksins er að öllu leyti vandað, svo sem kostur er á. 6. Snót. Allir, sem komnir eru til fullorðinsára, þekkja hina vinsælu ljóðabók, Snót. Hún var um skeið vinsælasta ljóðabókin á landinu. Nú er hún komin út í nýrri vandaðri útgáfu. 7. Ljóð Einars Benediktssonar eru nú fullprentuð. 8. Völuspá í útgáfu Eiríks Kerúlfs, hefur að vonum vakið mikla athygli, og ættu þeir, sem unna norrænum fræðum, ekki að draga það lengur að fá sér þessa bók. 9. „Raula ég við rokkinn minn“. Ein sérkennilegasta bókin, er kom út á síðastliðnu hausti, heitir „Raula ég við rokkinn minn“. Það eru þulur og þjóðkvæði, sem Ófeigur Ófeigsson læknir hefur skráð og skreytt. Ófeigur er listfengur maður með afbrigðum, og hefur þessi bók vakið sérstaka athygli.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.