Eimreiðin - 01.04.1946, Síða 16
XVI
EIMREIÐIN
Bækurnar, sem hver góöur bðkamaður
þarf að eiga og lesa.
1. íslenzkir þjóðhættir,
eftir Jónas Jónasson frá Hrafnagili. Fyrri útgáfa seldist á örskömm-
um tíma, og bókin hefur verið ófáanleg síðan. Nú er komin út önnur
útgáfa, að öllu leyti jafnvönduð hinni fyrri. Tryggið yður eintak strax.
2. Ljóðasafn Jóns Magnússonar.
Ljóð Jóns Magnússonar eru þjóðkunn og viðurkennd að makleikum-
Þau hafa komið út með nokkru millibili, og aldrei verið öll samtímis
í bókaverzlunum. Þetta er góð og falleg útgáfa, sem er prýði á
hverju heimili.
3. Sjósókn.
Endurminningar Erlends Björnssonar á Breiðabólsstöðum, skráðar af
séra Jóni Thorarensen. Þessi bók á samstöðu með íslenzkum þjóð-
háttum og mun verða vinsæl um allt land. Hún er skemmtileg og falleg.
h. Sálin hans Jóns mlns.
Snilldarkvæði Davíðs er hér búið £ svo fallega umgjörð eftir Valgerði
Ólafsdóttur, að þar er hvort öðru samboðið.
5. Biblían í myndum.
Séra Bjarni Jónsson, vígslubiskup, hefur undanfarin ár unnið að því
að búa undir prentun þetta verk. Myndirnar eru eftir hinn fræga
franska listamann Gustave Doré, og til verksins er að öllu leyti
vandað, svo sem kostur er á.
6. Snót.
Allir, sem komnir eru til fullorðinsára, þekkja hina vinsælu ljóðabók,
Snót. Hún var um skeið vinsælasta ljóðabókin á landinu. Nú er hún
komin út í nýrri vandaðri útgáfu.
7. Ljóð Einars Benediktssonar
eru nú fullprentuð.
8. Völuspá
í útgáfu Eiríks Kerúlfs, hefur að vonum vakið mikla athygli, og ættu
þeir, sem unna norrænum fræðum, ekki að draga það lengur að fá
sér þessa bók.
9. „Raula ég við rokkinn minn“.
Ein sérkennilegasta bókin, er kom út á síðastliðnu hausti, heitir „Raula
ég við rokkinn minn“. Það eru þulur og þjóðkvæði, sem Ófeigur
Ófeigsson læknir hefur skráð og skreytt. Ófeigur er listfengur maður
með afbrigðum, og hefur þessi bók vakið sérstaka athygli.