Eimreiðin - 01.04.1946, Qupperneq 17
EIMREIÐIN
April—júní 1946
LIL ár, 2. hefti
29. apríl 1946.
ÁTÖKIN UM ÍSLAND.
Hinn 27. ágúst 1945 var í þessum greinaflokki rætt um
landvarnamál Islands. Þar var því haldið fram, að landið
niundi ekki geta staðið varnarlaust og einangrað, ef það
ætti að halda sjálfstæði sínu. Frá landvörnum íslands yrði
að ganga þannig, að sæmandi væri hinu nýstofnaða ís-
lenzka lýðveldi, og undir engum kringumstæðum mætti
semja um nokkrar landvarnir á íslandi nema með vilja,
vitund og samþykki þjóðarinnar.
Sex vikurn eftir að þetta var ritað gaus upp kvitturinn
að Bandaríkjastjórn færi fram á leigu á herstöðvum
hér á landi. Út af þessum kvitt og í sambandi við hann
spannst hinn heiftúðugasti áróður, bæði frá einum stjórn-
laálaflokki hér heima, með tvo menn í sjálfri ríkisstjórn-
inni, og frá hagsmunaheildum á meginlandi Evrópu, eink-
Um gegnum málpípur frá Danmörku og Svíþjóð. Allskonar
Sróusögur komust á kreik um væntanlegar herstöðvar og
langa hersetu Bandaríkjanna hér á landi. Hin viðkvæm-
Ustu utanríkismál voru gerð að æsingarefni. Og eins og
°ft vill verða í opinberum umræðum vor Islendinga, urðu
^figzlin og stóryrðin rökunum rétthærri, og árangurinn svo
cftir því. Þetta er veikleiki, sem batnar eftir því, sem
stjórnmálaþroskinn vex. En ríkisstjórn íslands þagði um
^ið sanna í málinu, hafði öll og óskipt samþykkt að þegja,
samkvæmt yfirlýsingu tveggja meðlima hennar. Á hinn
^óginn var reynt að kæfa með hávaða raddir þeirra manna,
Sem höfðu gert sér ljóst, að íslenzka ríkið þurfi að koma
iandvörnum sínum fyrir að hætti siðaðra og sjálfstæðra
6