Eimreiðin - 01.04.1946, Side 20
84
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
EIMREIÐIN
komst hann meðal annars svo að orði, að það hefði verið
af tveim ástæðum, að Bretar komu hingað 10. maí 1940:
I fyrsta lagi af því, að annars hefðu óvinirnir orðið á und-
an hingað og í öðru lagi af því, að Bretar hefðu orðið að
hafa þessa stöð hér til þess að halda opnum siglingaleiðum
um Atlantshafið. Það var henni að þakka, að sigur vannst í
styrjöldinni, sagði Edwards flugliðsforingi ennfremur. I
einum mánuði aðeins, maí 1943, voru gerðar 39 árásir á kaf-
báta frá þessari herstöð.
í svarræðu sinni við þetta sama tækifæri lýsti forsætis-
og utanríkisráðherra íslands yfir algerum bandalags- og
samvinnuvilja íslenzku þjóðarinnar, með þessum orðum:
„Sannleikurinn er sá, að í rauninni vorum við ekki her-
tekin þjóð, heldur bandamenn“. Og um ráðstafanir brezka
hersins hér sagði ráðherrann: „Við vissum, að þetta var
nauðsyn í þágu baráttunnar fyrir þeim hugsjónum, sem
íslendingar tigna og eiga líf sitt og þjóðfrelsi undir, að séu
í heiðri hafðar í veröldinni.“
Það er undir því komið hvort þessi samvinnuvilji fæV
að ráða áfram í sambúð íslendinga við engilsaxnesku þjóð-
irnar, að hið nýstofnaða lýðveldi vort nær að dafna eða
ekki.
ENDURHEIMT ÍSLENZKRA EIGNA.
Krafan um endurheimt íslenzkra skjala og annarra verð-
mætra gripa íslenzkra úr garði Dana hefur verið fram
flutt um langt skeið, en aðeins að sáralitlu leyti uppfy^*
enn sem komið er. Má þó gera ráð fyrir, að ekki líði mbrg
ár unz allir þessir íslenzku fjársjóðir verði komnir heilu
og höldnu heim til íslands aftur. Þau illu örlög að eiga
þessi verðmæti geymd í erlendri höfuðborg, af því að hun
taldist um skeið einnig höfuðborg Islands, og í vörzlum
erlendra konunga, af því að þeir töldust einnig konung'
ar íslands, eru nú senn úr sögunni. Vér erum að einu ley^
sammála hinni dönsku frú, Lis Jacobsen, doktor, sem
rit'
-------- ----- --------------— --------7 -----7 #
að hefur nýlega um þessi mál og gert af veikum mætti 1
raun til að réttlæta það, að Danir neiti afhendingu þeSS
ra íslenzku eigna. Vér erum henni sammála í því, að eK
ara