Eimreiðin - 01.04.1946, Qupperneq 26
90
JAKOB THORARENSEN, SKÁLD
EIMREIÐIN
síimm háttum. Þetta hefur bæði komið fram í yrkisefnum og
skoðunum, en einkum í kveðandi og málfari.
Fyrstu kvæði Jakobs Thorarensen komu eins og liressandi gust-
ur. Þau voru hispurslaus í máli, lirein og karlmannleg í kveðandi
og rími, sjálfstæð og sérkennileg að yrkisefnum, einlæg og opin-
ská í skoðunum.
Þessi einkenni á kveðskap Jakobs Thorarensen liafa lialdizt
síðan með ýmsuin tilbrigðum. Hann hefur gefið út sex kvæða-
bækur með kringum 300 kvæðum og auk þess lausavísur og all-
margar smásögur, í þremur söfnum.
Flestum mun Jakob Tliorarensen vera minnisstæðastur fyrir
kvæði lians. En ýmsar smásögur, -—- þær fyrstu þeirra birtust í
Eimreiðinni, undir dulnefninu „Jón jöklari“, eru einnig mjög
haglega gerðar, sumar meðal þeirra snjöllustu, sem liér liafa
verið samdar seinni árin. Þær eru lipurt og látlaust sagðar, en
oft í þeim þungi alvöru og ádeilu eða liæðni. Söguefnin eru
ýms skemmtileg og sérkennileg.
Kvæðin eru samt höfuðrit Jakobs Tliorarensen. Þau eru flest,
og þau eru bezt.
Það er venjulega ekki gott að flokka kvæði. En til glöggvunar
mætti skipta meginkvæðum Jakobs Tliorarensen í þrjá eða fjóra
flokka. Það eru kvæði, sem lýsa landi og náttúru. Sögukvæði.
Yms kvæði, þar sem efnið er úr daglegu lífi eða þjóðlífi. Loks
eru þau kvæði, sem lýsa sérstaklega skoðunum eða lífsviðliorfum,
í ádeilu eða glensi. Þetta er reyndar yfirborðsskipting og nær ekki
til allra kvæðanna. En það er samt skipting, sem rninnir á megin-
þætti og setur þá nokkuð í samband við annan kveðskap. Skipt-
ingin í þessa kvæðafokka getur einnig verið til nokkurs skilnings
á þróun yrkisefnanna. 1 fyrstu kvæðabókinni, Snæljósum, eru
flest kvæðin um landið og náttúruna og lífskjör og lifnaðarháttu
fólksins. Þar er eiginlega ekki nema eitt sögukvæði, um Guðrúnu
Ósvífursdóttur, en nokkur minningakvæði um einstaka menn.
Sögukvæðin koma seinna, livert af öðru. Saga landsins, öndvegis-
menn hennar og lietjur eða harmamenn, draga síðan að sér meiri
og meiri atliygli skáldsins, þegar árin færast yfir. Þetta ein-
kenni liefur komið víðar fram í bókmenntum samtímans og er
að vísu gamalt. Sögueðlið er mjög ríkt í íslendingum. Sagan
hefur verið þeim livorttveggja, ævintýri og liarður veruleiki. í