Eimreiðin - 01.04.1946, Qupperneq 34
98
JAKOB THORARENSEN, SKÁLD
EIMREIÐIN
leg og sérkennileg fyrir sjálfan hann. Venjulega fer það ekki
milli mála í höfuðkvæðum hans, hvert liöfundarmarkið er.
Þetta kemur ekki síður fram í málfari hans. Ýms orðmyndun
lians og orðnotkun er einkennileg. Sumt eru blælítil eða óþjál
orð, annarsstaðar glampar á kjarnyrði og glitrandi rím.
Hann notar allmikið gömul og venjuleg skáldmálsorð, eins
og lirund, drós, drótt, sunna, sjóli, lofðungur, liyrr, og sam-
setningar eins og sjafnarfuni, sjafnarhót, sjafnarlog. Skáldmál
hans er víða öllu meira í ætt við kenningar en tíðkanlegt er
hjá öðrum samtímaskáldum, eftir að rímnabragir féllu að
mestu niður. Þetta er samt ekki svo að skilja, að upp séu
teknar fornar kenningar (þó að heitin séu alhnörg), heldur er
líkinga- og myndamál allalgengt í orðmynduninni. I þá átt eru
orð eins og: kaldlyndisklakinn, hefnihnefar hnúabera sann-
leikans, úfin hrjósturliöf, að á á hjúskaparheiði (um silfurbriið-
kaup). Sem dæmi sérkennilegra orða má nefna: úriggustur,
stormasvall, stormastreyta, liugarvos, hughvíld, liúmfallið tár,
hremmistormur, geislagjöful sunna, vaskmenni, kjarkskáld,
stoltarglæst kona, sólglöð stund, að fagurlýsa vang o. fl. Innan
um bregður svo fyrir liversdagsorðum mælts máls, gömlum og
nýjum: klár, kunnst, plat, fírugur. Eins er stundum rímað eftir
framburði mælts máls, t. d. urr : kjurr. Málfar og kveðandi
síðari tíma skálda er því miður órannsakað enn að mestu leyti-
Hlutur Jakobs Thorarensen er þar víða sérkennilegur og skeinmti-
legur.
Svo er um allan skáldmannslilut Jakobs Tliorarensen. Ég sagði
áðan, að lieildarútgáfa kvæða lians væri æskileg. Hún er þ;|ð
til sögulegs yfirlits um feril sjálfs hans og til ákvörðunar á stöðu
hans í bókmenntasögunni. En eins og gengur og gerist um mikinn
verkmann, liafa ýms kvæðin lítið annað en sögulegt gildi þegar
frá líður. Til þ ess að fá yfirsýn urn það, sem stöðugt stendur, fyrir
listgildi sitt og lífsgildi, væri æskilegt að gera gott úrval ur
kvæðum Jakobs Tliorarensen, alliliða en hófsamlegt úrvah
Slíkt úrval mundi bezt sýna það, að Jakob Tliorarensen liefur
verið eitt af liöfuðskáldum Islendinga síðustu áratugina. Hal111
hefur verið það fyrir listaralvöru sína og lífsboðskap, fyrir per'
sónulegan bragstíl sinn, fyrir raunsæi sitt á menn og málefni og
fyrir trú sína á h'fið og landið.