Eimreiðin - 01.04.1946, Qupperneq 44
108
SKILNAÐARSTEFNAN FJÖRUTÍU ÁRA eimrbiðin
Fyrir 40 árum var bjartsýni ríkjandi um vöxt og viðgang
hinnar friðsömu þjóðfrelsisstefnu. 1 traustinu á einangraða legu
vora fyrir innan múr af demókratískum þjóðum, byggðum vér
sjálfstæðisvonir vorar. Og virtust þá eigi aðrar varnir nauðsyn-
legar, né lieldur að vér þyrftum nokkuð verulegt í sölur að
leggja. — En þetta hefur brugðist. Varnarmúrinn hefur verið
rofinn og einangrunaröryggið er úr sögunni. Vér erum komnir
í þjóðbraut. Vér liöfum einu sinni orðið að lána land vort sem
hervarnarstöð, en sem betur fer, einmitt til þeirra vinveittu þjóða,
sem fyrstar viðurkenndu sjálfstæði vort. Varð það til þess að
stuðla að sigri þessara þjóða og treysta vináttuböndin við þær
og þar með framtíðarliorfur sjálfstæðis vors, ef vér bregðumst
ekki trausti nú.
Þegar þess er nú gætt, að óvirka einangrunarsjálfstæðið er úr
sögunni, þá er Ijóst, að eintómar sjálfstæðis-uiðnr/cerenmgar duga
oss ekki lengur. Þeim fylgir engin framtíðarábyrgð og engin
trygging eða vernd. Þær merkja ekki annað en það, að vér séum
skoðaðir sem sjálfstæðir samningsaðilar á meðan vér ekki fyrir-
gerum þeim rétti með því að neita að nota liann.
Það er þá ljóst, að vort núverandi sjálfstæði er eingöngu
fólgið í samningsréttinum við önnur ríki. Og ætti að vera aug-
1 jóst, að ef einmitt þau ríki, sem vér fyrst og fremst eigum
þennan rétt að þakka, bjóða oss til samninga, þá getum vér
ekki neitað að tala við þau. Vér megum ekki vanrækja að vera
með í ráðum um allar ráðstafanir, er oss snerta. Vér megum
ekki gleyma linattstöðu landsins, sem er sú, að vér liggjuin á
vesturliveli jarðar fyrir vestan sjálft Bretland og því algerlega
inni á hinu engilsaxneska samvarnarsvæði. Aftur liggja liinar
norrænu frændþjóðir vorar á öðru áhrifasvæði á austurbveli
jarðar. Hefur þessi ólíka afstaða vor og þeirra sannað sig mjög
áþíeifanlega í undanförnum styrjöldum.
Það, sem mér virðist bera að leggja áberzlu á, er þetta: — Hin
pólitísku sambandsslit við Dani eru eðlileg, en þau mega ekki
vera liugsuð sem liður í skammsýnni og óvirkri einangrunar-
stefnu, heldur þvert á móti til þess gerð, að vér getum náð
öruggara og eðlilegra sambandi út á við.