Eimreiðin - 01.04.1946, Page 58
122
HREINDÝRAYEIÐAR SUMARIÐ 1945
EIMREIÐIN
inn, sem hefur þann mikla vanda á höndum, og alla þá miklu
áliættu og erfiðleika, sem slíkum veiðiferðum fylgja.
Tíminn til veiða er beztur í ágústmánuði. Þá eru dýrin feitust,
skinnin fallegust og bezt að eiga við tarfana, sem lialda sig
mikið út af fyrir sig í smáhópum, dreifðum um öræfin. Á þeim
tíma eru tarfarnir miklu gæfari en kýrnar og ungdýrin, sem
oft eru í stærri hópum og fara eins og logi yfir akur, verði þau
rnanna vör.
Til einnar lireindýraveiðiferðar var stofnað sumarið 1945, og
liófst ferðin 15. ágúst, sólbjartan sumardag. Þeir, sem ákveðið
höfðu að fara þessa veiðiför, voru: Friðrik Stefánsson eftirlits-
maður, Hermann Ágústsson búðarmaður lijá Kaupfélagi Héraðs-
húa, Kjartan Bjarnason, Þuríðarstöðum í Fljótsdal, Sigmar
Pétursson, Glúmsstöðum í Fljótsdal, og Þorsteinn Jónsson, kaup-
félagsstjóri á Reyðarfirði, er ritar þessa ferðasögu.
Við Hermann lögðum af stað frá Reyðarfirði miðvikudaginn
15. ágúst og fórum með bíl að Bessastöðum í Fljótsdal. Þar skvldu
allir ferðamennirnir liittast. Ég liafði sent dreng með liesta mína
frá Reyðarfirði upp að Bessastöðum. Voru það fimm valdir
dugnaðar- og viljahestar, því búast mátti við að talsvert þyrfti a
þá að reyna. Hinir ferðamennirnir höfðu liesta sína úr Fljótsdal-
Höfðum við safnað öllum hestum og útbúnaði saman að Bessa-
stöðum um kl. 4 um daginn. Við liöfðum alls 18 hesta, þar
af 8 með reiðingi til að flytja tjöld og vistir og annan ut-
búnað, sem með þarf til slíkrar ferðar, þar eð við gerðum
ráð fyrir að verða eina 8—10 daga. Margt þarf að hafa til
slíkrar’ útilégu á öræfum, ef fyrir fram á að sjá fyrir sæniilegrl
líðan ferðámannanna. Eftir að við liöfðum búið upp á alla
hestaná, var lagt af stað sem leið liggur norður yfir Fljotg'
dalsheiði til Jökuldals. Leiðin yfir Fljótsdalsheiði frá Bessa-
stöðum að Hákonarstaðabrú, tekur 4 tíma með sæmilegri fei^-
Gekk ferðin yfir lieiðina fremur vel, þó alltaf sé stirt að reka
marga liesta með flutningi, sérstaklega fyrst, meðan þeir eru að
venjast ferðalaginu. Þó nokkuð sé bratt upp á lieiðina, er allur
vegurinn fremur greiðfær. Frá Hákonarstaðabrú er tveggja líma
ferð að Eiríksstöðum á Jökuldal. Komum við þangað tim kl. 1®’
og var þá orðið dimmt að kveldi. Fengum við þar góða girðingu
og ágætis gistingu, eins og vant er á því lieimili. Á Eiríksstöðum