Eimreiðin - 01.04.1946, Side 59
EUIREIÐIN
HREINDÝRAVEIÐAR SUMARIÐ 1945
123
er tvíbýli og búskapur rekinn þar með mesta myndarbrag. Eru
þar búhðldar góðir, sem byrgir eru af öllu. Hefur þar aldrei
skort góðan kost né björg fyrir búpening. Allir eru þar velkomnir,
seni að garði bera, og eykur það mikið á vellíðan ferðamannsins.
Aóttiua áður liöfðu verið þar 20 gestir, og sá ekki á, að nokkuð
hefði þar til þurrðar gengið.
Ákveðið var að leggja af stað kl. 9 morguninn eftir, en við
tirðum þó lieldur seinna ferðbúnir. Það tók lengri tíma en við
liöfðum gert ráð fyrir að ná bestunum, því margir þeirra voru
styggir og illt að handsama þá. Síðan var lialdið að Brú, sem er
efsti bær á Jökuldal, og nær klukkutíma ferð frá Eiríksstöðum.
ar þar stanzað nokkurn tírna, því það þekkist ekki á Jökuldal
binum efra, að þar fari nokkur svo fram lijá bæ, að ekki þvggi
góðgerðir. Bóndinn á Brú, sem er eigandi að stórum hluta af
þeim öræfum, er hreindýrin ganga á, taldi okkur ekki hafa
beimild til að fara slíka veiðiför í sitt land, og má vera að hann
iiafi þar rétt fyrir sér, að hann geti fyrirboðið liverskonar veiði-
skap í landi sínu. En eftirlitsmaðurinn, sem fyrirmæli liafði frá
fíkisstjórninni um að veiða dýrin, taldi sig öruggan með sinn
rett. Þó að þetta væri sennilega réttmæt ályktun lijá bónda, dró
það ekki úr þeirri risnu og liöfðingsskap, sem þar ríkir gagnvart
ferðamönnum. Frá Brú var haldið til öræfanna. Fórum við fvrst
sem leið liggur norður á lieiðarbrúnina fyrir ofan Brú, og þaðan
beint í vestur, í Laugarvalladal. Áðum við á gömlu býli þar í
dalnum, sem hét Laugarvellir og lagðist í eyði skömmu eftir
síðustu aldamót. Er sem næst þriggja tíma ferð þangað frá Brú.
^afa sennilega fá býli átt jafnlan'gt að sækja til verzlunarstaðar
bér á landi, sem Laugarvellir. Mun það liafa tekið 8—10 daga
ab fara kaupstaðarferð með klyfjaliesta, eins og þá var siður, en
111 er hægt að komast þangað í bíl. Á Laugarvöllum er heit laug.
Áaeri því þægilegt að liita þar upp bæjarliús með nútíma tækni,
°g þó ekki sé þar mikið slægjuland, má eflaust rækta þar gott
gras og margskonar jarðargróður, við jarðhitann, og kjarnaland
er þar svo mikið, að sauðfé verður vart annarsstaðar vænna. Eru
þ^rna sennilega faldir góðir framtíðarmöguleikar fyrir dugandi
fyrirhyggjumenn. Eftir að við liöfðum snætt og livílt hestana,
' ar baldið áfram suður Laugarvalladal, inn að Sauðá, sem kemur
'estan af öræfunum, undan Vatnajökli, og fellur í Jökulsá rétt