Eimreiðin - 01.04.1946, Page 62
126
HREINDÝRAVEIÐAR SUMARIÐ 1945
bimreiðin
gresinu, þó það væri ekki liávaxið á þessum slóðum. Indælt var
út að líta, glaða sólskin og stillilogn. Kyrrðin og friðurinn færði
ró og sælu. Ekkert truflaði, enginn fugl, engin lífvera sást. Hinn
stóri og víði sjóndeildarhringur virtist tómur. Hvílíkur niunur,
livílík livíld, að koma í slíka kyrrð úr skarkala lífsins. Slíkar
stundir væru dýrmætar fyrir skáld og listamenn. Þar mundu
hæfileikar þeirra njóta sín vel.
Nálægt tjaldstaðnum var lind, þar sem við gátum baðað okkur
og þvegið. Eftir slíka hressingu drukkum við morgunkaffi og
sóttum síðan gæðingana. Skotmenn, þeir Friðrik, Hermann og
Kjartan, riðu nú af stað með riffla um 8x1, girtir skotfærabelti
og sjónauka í ól um hálsinn. Líktust þeir mjög riddurum, er
maður lieyrir glæsilegast lýst í erlendum rómönum. Hugðu þeir
nú til mikillar veiði, og hurfu brátt sjónum okkar bak við öldur
og liæðir öræfanna.
Við Sigmar fórum með reiðingshesta að liirða veiðina og koma
henni á þann stað, er liægt var að koma híl að. Við höfðuni
gert ráðstafanir til þess, að bíll kæmi á sunnudagsmorgun af
Reyðarfirði. Þurfti liann að leggja af stað á laugardag og gat
komizt að Kringilsá nokkuð sunnar en tjaldstaður okkar var, og
þurftum við því að flytja alla veiðina þangað. Nokkuð erfitt
var að eiga við hestana, því þeir eru yfirleitt liræddir við
hreindýr, frýsa og fælast, þegar þeir finna blóðlyktina. Þetta
tafði okkur nokkuð, en sóttist Jió allt sæmilega.
Klukkan tvö um daginn komu skotmenn lieim að tjöldum og
höfðu þá skotið tvö dýr, skiptu nú um liesta og lögðu síðan af
stað aftur, í von um meiri veiði. Við Sigmar fórum að sækja
hin slátruðu dýr, sem voru langt í burtu, og urðum við að finna
þau eftir lýsingu af landslagi og miðun frá ákveðnum stöðum-
Gekk það allt sæmilega.
Er skotmenn komu heim um kvöldið, liöfðu þeir skotið aðra
tvo tarfa, mjög langt frá tjöldunum, annan inn undir Vatna-
jökli. Voru þeir ekki ánægðir með veiðina, sáu lítið af dýrum
í þessu Sauðafellslandi, norðan Kringilsár. Aftur á móti sáu þeir
dýr á Kringilsárrana, sunnan við ána. En vegna liinna niikln
hita var mikill jökulvöxtur í Kringilsá, og hún með öllu ófær.
Laugardaginn 18. ágúst var sama yndælis veðrið, loftið lireinl
og skýjalaust um morguninn. Fararstjóri gekk um tjöldin °S