Eimreiðin - 01.04.1946, Blaðsíða 81
eimreiðin
145
Aus±firzkar sagnir II.
Þrekraunir.
fHöfuðatburður sá, sem hér er frá sagt, var mikið umtalaður og
lengi í minnum hafður á Austurlandi. Hafa þeir um hann ritað báðir,
Einar prófastur Jónsson og Sigfús Sigfússon sagnaþulur. Frásögnum
þeirra ber saman í meginatriðum, en greinir á um einstök minni háttar
atriði. Einar prófastur hefur sína frásögn eftir móður sinni, en hún
eftir tengdamóður sinni, Valgerði konu Þorsteins, sem mest kemur við
sögu, en Sigfús segir frá eftir sögnum kunnugra manna. Verður hér
fylgt frásögn Einars prófasts, en getið hins helzta, sem Sigfús segir
öðruvísi frá].
í byrjun 19. aldar bjó að Götu í Fellum (það lieitir nú Holt)
í hálfan annan áratug Þorsteinn Magnússon bónda á Hámundar-
stöðum í Vopnafirði, Bjarnasonar. Móðir lians var Kristrún Þor-
steinsdóttir, stúdents Bjarnasonar frá Fossvöllum. Kona Þor-
gteins liét Valgerður Jónsdóttir bónda á Hrísum í Fljótsdal. Þau
^'ötuhjón voru vel að sér ger og vel metin, en biihagir voru
^remur þröngir, sem þá var tíðast.
Það var á útmánuðum einn veturinn, sem þau Þorsteinn og
^algerður bjuggu í Götu, að Þorsteinn stóð yfir fé sínu í heiðar-
Þrekkunum suður og upp frá bænum. Veður var kyrrt og frost-
Þtið, en snjóhreyta lítilsbáttar. Byssu liefur hann liaft með sér
°g mun þá liafa gengið frá fénu upp til heiðarinnar til að skyggn-
ast uni til veiðifanga. Sá hann þá lireindýr og tók að elta það;
Þefur það þá orðið lians vart fyrr en liann kæmist í skotfæri.
®Þi liann dýrið lengi áður hann kæmist í skotfæri og gæti drepið
l'að. Sigfús segir svo frá, að það bafi verið liáttur Þorsteins að
®anga á heiðina á vetrum til hreindýraveiða, liafi liann haft
dýrhund og att á dýrin. Á þann liátt liafi staðið á för hans í
^etta sinn; hann liafi hitt fyrir hóp dýra og elt liann inn og
'estur undir Miðheiðarliáls, þvert af Arnheiðarstöðum (tvær
angar bæjarleiðir), áður en liann fékk liöndlað dýrið. Tók hann
nú til að flá dýrið og lima sundur, tók feldinn, hatt saman gang-
tttiina og lagði livorttveggja á bak sér til heimflutnings. En
10