Eimreiðin - 01.01.1952, Blaðsíða 10
VI
EIMREIÐJN
EIMREIÐIN
árgangur 1952, verður 22—24 arkir og því a. m. k. 4
örkum stærri en síðasti árgangur. Áskriftargjaldið er
nú kr. 50,00 (erlendis kr. 60,00) burðargjaldsfrítt.
Lausasöluverð: kr. 15,00 heftið. Kaupendur eru vin-
samlega beðnir að senda áskriftargjaldið afgreiðslunni
í Lækjargötu 2, Reykjavík, svo snemma, að það sé inn-
borgað áður en næsta hefti kemur út, eða ekki seinna
en fyrir júnílok næstk. Með næsta hefti verður þeim
send póstkrafa, sem þá kunna að eiga ógreidd áskriftar-
gjöld. Munið ætíð að senda áskriftargjöldin svo tíman-
lega, að aldrei þurfi að senda póstkröfu. Það sparar
yður póstkröfugjöld.
Enn fást fáein eintök af Eimreiðinni, árg. 1922—1951,
compl. 30 árgangar, fyrir hið upphaflega, lága verð:
Kr. 600,00. Þau einstök hefti, sem til eru frá fyrri árum,
fást með lausasöluverði.
Allir, sem eiga Eimreiðina, þurfa að eignast Efnis-
skrá hennar, fyrstu fimmtíu árin (1895—1945). Efnis-
skráin kostar kr. 15,00.
Bókin Ósýnileg áhrifaöfl eftir dr. Alexander Cannon
(með mynd höfundarins) fæst enn og kostar í kápu
kr. 24,00.
Við sendum burðargjaldsfrítt hvert á land sem er,
fylgi greiðsla pöntun.
&i aólö(f é^imreiÁi
imrei öaruinar
LÆKJARGÖTU 2.
REYKJAVÍK.