Eimreiðin - 01.01.1952, Blaðsíða 31
eimreiðin
ÆSKULINDIN
19
þótt um hinn fjölþættasta og fullþroskaðasta einstakling sé að
ræða. Af þessu leiðir, að jafnvel hið hamingjusamasta hjónaband
getur eigi veitt nema örlitið brot af lífsreynslu. Og það enda þótt
innilegustu hjónabönd nálgist það, á heitustu algleymisstundum,
að gera sér grein fyrir samsömun mannsins við alheiminn, á
svipaðan hátt og dulspekingurinn í einveru sinni. Fyrir utan hið
raunverulega samlíf hjónanna hljóta því ætíð að finnast margar
tegundir andræns lífs og margir lífsmöguleikar, sem aðeins er
unnt að kynnast i samlífi við aðra menn utan hjónabands og í
einveru og þögn. * * #
Og hugur þeirra blindu riddaranna hvarflaði inn og langt
aftur í aldir, alla leið til upphafs þess ríkis, er riddaraöldina ól.
^eir höfðu báðir fundið frelsi sálar sinnar, hver á sína vísu, og
keypt það dýru verði fyrir skin og skúrir, gleði og hamingju,
sorgir og þjáningar, ástir og unað allrar sinnar ástríðufullu og
eirðarlausu ævi. Drúptu því þolinmóðir í þögn.
III.
Nú víkur sögunni til þess tíma, er heimsveldi Rómverja stóð
sem hæst. Þessi lönd lágu þá undir Rómaveldi, þegar það var
sem víðlendast, — ef nefnd eru löndin öll nöfnum þeim, er nú
kafa þau: Italía, England, Frakkland, Spánn og Portúgal, Sviss,
Suður-Þýzkaland allt og allur suðurhluti Austurrikis; Ungverja-
land mest-allt. Eyjahafið allt ásamt Grikklandi og Grísku-eyjun-
Urn- Balkanskagi allur. Litla-Asía með löndum öllum. Sýrland,
Mesópótamía, ísrael, Egyptaland og öll Norður-Afríka.
Einmitt á þeim tíma, er heimsveldi Rómar var að rísa sem
hæst, gerðust þau undur, er mestum tíðindum sæta í allri verald-
arsögunni: Herrann Kristur var i heiminn borinn.
IV.
Það var þá, er reis upp riddaraöldin. Sú öld er ekki útdauð
eun. Riddari merkir, að réttu lagi, hermaður á hestbaki, reið-
niaður. Sá er sagður berjast riddaralega, er hagar sér heiðarlega,
hræðist engar hættur, er glæsilegur og göfugmannlegur í öllu
Í9si, beitir engum brögðum, vegur ekki að vopnlausum manni,