Eimreiðin - 01.01.1952, Blaðsíða 34
22
ÆSKULINDIN
F.IMREIÐIN
jafnvægi í lögun, línum, litum og hreyfingum. — Hvílíkt geisl-
andi augnakast í gleði og hrifningu.
1 konunni hefur skaparinn losað fegurstu blómjurtina og léð
henni vængi. Því er hún veik, mitt í veldi sínu. Hún þarfnast
verndar, skjóls og öryggis. Og í því tilefni leitar hún til manns-
ins. En þegar hún er komin í vígi sitt, er hún óvinnandi borg.
Og hún er duttlungafull eins og veðurfarið.
VI.
Konan er dýrasta perlan í ríki riddarans. Hún getur verið
hraust og hugprúð, engu síður en hann. Já, engu síður en sjálfur
Frelsarinn, er fórnaði lifi sínu fyrir andlega frelsið í sannleik-
anum.
Blandína fagra, brúður Krists, gaf honum sjálfum ekkert eftir
að hreysti og hugprýði. Þetta gerðist á fyrstu árum kristninnar.
Kristur sjálfur hafði þá verið líflátinn, og öll hugsanleg ráð upp-
fundin til að þurrka út öll hans áhrif. — Ríki Rómar spannaði
þá öll vesturlönd, eða „heim allan“, er svo var þá kallað. Kristnin
var ískyggilega ísmeygilegur fleygur, er orkaði innanfrá, að allt
Rómariki skalf og nötraði fyrir þessu ósýnilega valdi, er virtist
orðið geta óviðráðanlegt, ef það næði til fjöldans. Veraldleg áþján
og andlegt frelsi hafa ætíð átt erfiða samleið.
Blandína fagra var flutt til Rómar frá Palestínu ásamt öðru
kristnu fólki, er kvelja skyldi til bana til skemmtunar fyrir lýð-
inn í þjóðarleikhúsinu, hringsætablóthöllinni miklu — Colos-
seum.
* * #
Blandinu fögru er svo lýst, að hún hafi verið mjög veikgerð
og feimin, en virtist þó hafa næsta ofurmannlegt persónulegt
töfravald. 1 fyrstu var því ákveðið að hlífa henni. Henni voru
sýnd pyndingartækin og boðin beztu gjaforð innan Rómaríkis,
landshöfðingja eða aðalsmann, ef hún opinberlega vildi afneita
kristninni og blóta. Hún hafnaði því boði.
Fundizt hafa skráðar samtímaheimildir, er skýra frá þessu.
Merkustu sagnfræðingar veraldarsögunnar hafa viðurkennt og
staðfest, að gögn þessi séu upprunaleg og ófölsuð.
Þar segir svo: