Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1952, Blaðsíða 67

Eimreiðin - 01.01.1952, Blaðsíða 67
eimreiðin FIMMTlU ÁRA MINNING 55 líka, hvað mér þótti mikið koma til Matthíasar í ræðustólnum, hafði ekki séð hann fyrr. Það lýsti af persónunni, og ræða hans var flutt af mikilli andagift. Sálmurinn eftir hann: „Faðir and- anna“ mun hafa verið sunginn við aldamótaræðuna og „Ó, guð vors lands“. Þessi lög voru sungin, auk þeirra er áður var getið: óft finnst oss vort land eins og helgrindahjarn, Þú vorgyðjan svífur, Þú bláfjalla geimur, allir textamir eftir Steingrím Thor- steinsson, Eitt er landið ægi girt og Enn er lítil lands vors saga, báðir textar eftir Matthías, bæði lögin nýsamin af Bjarna Þor- steinssyni, og þótti mikill fengur fyrir þá, sem söng unnu, Þér risajöklar eftir Kreuzer, Ó, undur kyrrð eftir Mendelsohn. Sumt af þessum lögum var sungið eftir að ræðuhöldunum lauk, til skemmtunar fyrir fólkið, og fleiri lög, sem ég er búinn að gleyma. Ekki er vafi á því, að eftir nútíma mælikvarða hafi margt mátt finna að þessum söng. En eitt er víst, að hann var frjáls, náttúr- legur og ríkur af hrifni þessa tækifæris. Það kom öllum saman Urn, er þama vom. Margir, er á hlýddu og er nú orðið eldra fólk, hafa sagt við mig löngu seinna, að aldrei gleymi þeir söngnum á aldamótahátíðinni á Ljósavatni. Ég segi frá þessari umsögn hér, enda þótt ég eigi að nokkru hlut að máli. — Hestar voru reyndir, glímur og fleiri íþróttir þreyttar. Það má fullyrða, að héraðshátíð þessi fór í alla staði vel fram, var vel skipulögð og náði tilgangi sínum. Fjöldi fólks og margir lengra að sóttu samkomuna, líklega um eða yfir hálft annað þús- und. Má nærri geta, að þar sem flest þetta fólk kom ríðandi á hestum — annað farartæki var þá ekki til, þá hafi hestarnir verið ^nargir. En þeir voru teknir af vissum mönnum til geymslu í fjallinu fyrir utan og ofan bæinn. Mér er í minni, þegar allur hópurinn var rekinn heim um kvöldið, þá var komin dimm þoka, hestarnir hneggjuðu mikið, voru þá að leita hver að öðrum, þar sem þeir höfðu aðskilizt í þokunni og þvögunni. Má nærri geta, að fyrirhafnarsamt hafi verið fyrir fólkið að finna hver sinn reið- skjóta og söðul, þó held ég, að flestir hafi fundið sitt að lokum. Veitingar, sem þau hjónin Bjöm Jóhannsson og Kristín Bene- hiktsdóttir önnuðust, fóru fram inni í íbúðarhúsinu. Mynd sú, sem hér er dregin upp af aldamótahátíðinni á Ljósa- vatni fyrir 50 árum, þykir nútíma fólki kannske ekki þess verð, að rifjuð sé upp. En gætum að því, að tímarnir þá voru að svo ^örgu leyti gjörólíkir því, sem nú er. Ég hygg, að unga fólkið, sem nú er að alast upp, með þeim mörgu og góðu skilyrðum, sem Því er lagt upp í hendumar til mennta og frama, hafi litla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.