Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1969, Page 39

Eimreiðin - 01.01.1969, Page 39
KRISTJÁN JÓNSSON 1842-1869 21 heim, sagði ég Kristjáni allt, sem ég hafði heyrt í ferðinni, og þá myndaðist „Veiðimaðurinn" eins og það kvæði var í fyrstu. Ekki man ég með vissu, hve ung- ur Kristján byrjaði að yrkja, en far- inn var hann að bera það við þegar á Auðbjargarstöðum, en hann var átta ára, þegar hann fór þaðan. Það var einkennilegt með fyrstu vísur hans, að þær voru svo að kalla ávallt með réttum hljóðstöf- um og hendingum, þó að sumu leyti væru rugl. Sýnishorn af vísum hans frá þessum árum er vísa sú, er hann orkti út af vígi Gunnars á Hlíðarenda er svona: „Þá dauðans bað var dottið á, drengskaps náðu fær enginn maður annar sá en hann glaður væri.“ Þótt gallar séu á vísunni, er hún furðanlega rétt kveðin af sjö eða átta vetra gömlum dreng. Það var oft vani Kristjáns, þá hann var einn úti, að liann gekk eða hljóp fram og aftur um sama blettinn og talaði upphátt við sjálf- an sig. Var hann þá að semja sögur eða vísur, og vissi þá ekkert, hvað lram fór í kringum hann. Svitinn lak ofan af honum; stundum nam hann staðar eitt augnablik, horfði beint frarn undan sér og þaut svo á stað aftur. Fyrir þetta og margt annað var hlegið mikið að honum og álitu sumir, að hann yrði fá- bjáni. Eftir að við komum að Ási varð nokkur breyting á þessu, þar eð þá var farið að reka hann áfram til vinnu. Hann var duglegur við suma vinnu, en gerði mörg axar- sköft, einkum við fjárgeymsluna. Það kom oft fyrir, að hann gekk rétt hjá fénu, en leit hvorki til hægri né vinstri, sá enga skepnu og kom heim svobúinn. Ekki kont það sjaldan fyrir, er hann var send- ur erinda á aðra bæi, að hann gleymdi erindinu, en ef hann mundi það, lét hann skilaboðin dynja óðara, og hljóp á stað án þess að bíða eftir svari, svo að kalla jjurfti á eftir honum eða elta hann. í æsku var Kristján bráðlyndur, og snemma óvæginn í orðum þá hann reiddist, en jafn-fljótt varð hann afreiður aftur. Þá var hann og snemma mislyndur — annað hvort þögull og þungbúinn, eða þá ofsakátur. Margir urðu til þess að atyrða hann, storka honum og velja honum háðuleg heiti. Svaraði Kristján þá all-biturlega og orkti ófagrar vísur um óvin sinn, en sjaldan þorði hann að láta aðra en mig heyra þær. Hann elskaði móð- ur sína, en hataði stjúpa sinn, því hann var honunr vondur. Og mér er það vel ljóst, að hin illu kjör Kristjáns þessi ár höfðu áhrif á hann alla ævi. Hin raunalega lífs- skoðun hans hefur að miklu leyti myndast út af hinni illu aðbúð, er hann átti þessi ár. Okkur bræðrun- um þótti ávallt vænt hvorum um annan. Oft reiddist hann fyrirmína hönd, er mér var nrisboðið og sást þá ekki fyrir í orði, og hlaut svo illt fyrir sjálfur. Kristján leit snemma nokkuð stórt á sig. Hann fann meiri kraft
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.