Ægir - 01.10.1912, Qupperneq 17
Æ G I R
125
miðlað nægu fólki til allra atvinnufyrirtækja
sem aukast mjög árlega, en fólkið ekki að sama
skapi, svo örðugleikar vaxa og kröfur hækka
við þá sem atvinnuna veita. Tilfinnanlega er
lika farið að bera á samkeppni frá útlendri hlið
með að fá vinnukraft hjer, einkum á botnvörpu-
skip seinnipart vetrar og vors, og svo til sild-
veiða á sumrin, — Petta veikir alt aðstöðu inn-
lenndra atvinnuveitenda.
Leitt er pað samt, ef hinn ágæti »jaglfiskur«
smátt og smátt hverfur af markaðinum og
verður aðeins sem endurminning frá horínum
dögum.
Mótorbátar
hafa ijölgað unnvörpum á síðari árum, en
liætl er við að afturkippur ekki allítill komi í
þá fiskisókn ef ekkert lagast með verð á
steinolíu. Pví þótt nýjar vjelar komi, sem
ganga fyrir öðru eldsneyti, þá hjálpar það ekki,
því fáir geta breytt um, hafa engin ráð til slíks.
Timínn sýnir hvort hægt er hið fyrsta að
komast úr þeim fjötrum, sem steinoliuverðið
setur menn i.
Opiiir bátar
eru smám saman að hverfa úr sögunni, eftir
fá ár verða þeir að likindum aðeins notaðir á
einstöku stöðum vissan liluta ársins, þó með
undantekningum, og þá helst við suðurströnd-
ina, I’orlákshöfn og Eyrarbakka, og við sunn-
anverðan Faxaflóa þann tima, sem fiskur kemur
af hafi og leitar grunns til að hrygna.
Afli á botnrörpunga og þilskip
sem gengið hafa frá Faxaflóa 1912.
Botnvörpungar:
Th. Th. & P. J. Th„ 2 skip fiskað . . 470,000
Alliance, 2 skip fiskað............... 397,000
Draupnir, 1 skip fiskað............... 265,000
H/f P. J. Th. & Co„ 3 skip fiskað . . 302,000
H/f. Kveldúlfur, 1 skip fiskað .... 208,000
H/f. Fram, 1 skip fiskað.............. 123,000
H/f. ísland, 1 skip liskað............ 205,000
Garðar & H. Zoéga, 1 skip fiskað . . 120,000
Botnv. (leiguskip):
H/f. ísland, 1 skip fiskað............212,000
H/f. Óðinn, 1 skip fiskað............. 120,000
H/f. Fram, 1 skip fiskað..............113,000
Garðar & H. Zoéga, 1 skip fiskað . . 124,000
16 skip fiskað samtals 2,659,000
Þ i 1 s k i p:
H/f Sjávarborg, 10 skip fiskað . . . 549,000
H. P. Duus, 11 skip fiskað............ 689,000
P. J. Th. & Co„ 8 skip fiskað .... 425,000
Th. Thorsteinsson, 2 skip fiskað . . 173,000
Jón Laxdal, 1 skip fiskað............... 7,000
Guðm. Ólafsson, 1 skip fiskað . . . 70,500
Sigurður Jónsson, 1 slcip fiskað . . . 28,000
H/f. »Stapi«, 1 skip fiskað.............. 58,000
J. P. T. Bryde, 1 skip fiskað .... 90,000
Einar Porgilsson, 1 skip fiskað . . . 83,000
L. Tang, ísafirði, 1 skip fiskað . . . 59,000
38 skip fiskað samtals 2,241,500
38 þilskip og 16 botnvörpungar fiskað
samtals............................... 4,900,500
Verð á flski og öðrum sjávarafurðum.
Verðið á sjávaraíurðum hefur verið hærra — á
flestumþeirra —en hægt var að búast við snemma
vors. Veiðin við Noreg var svo afskaplega
mikil eins og mönnum er þegar kunnugt fyrir
löngu og var við búið að það mundi hala
miklu meiri áhrif á markaðinn en raun hefur
á orðið, en það hefur aftur á móti hindrað
verðfallið, að botnvörpuskip urðu tept seinni
hluta vetrar víða um álfuna vegna kolaverk-
fallsins, svo þegar alls er gætt, mun framleiðsla
á fiski ekki liafa orðið meiri en i góðu meðalári,
þegar þar að auki er tekið til hliðsjónar vax-
andi eftirspurn eftir fiski á heimsmarkaðinum.
Veðráttan hetur líka áhrif á fiskimarkaðinn elcki
siður en á veiðiskapinn.þvi þegar vætur og óþurk-'
ar ganga mjög miklir fyrri hluta sumars, þá
kemur því minna inn á markaðinn, byrgðirnar
þrjóta, og þegar lítið eða ekkert kemur í stað-
inn hækkar verðið. Petta hefur líka átt sjer
stað í ár; óþurkar gengu talsverðir i júní og
júli, verðið hjelt sjer, en eftir því sem lengur
leið á suraarið hækkaði það til muna. En
verðhækkun sem verður svo seint á tíma kem-
ur ekki nema örfáum til nota, framleiðendur
hafa þá venjulega selt sinn fisk áður kaup-
mönnum og þeir svo selt aftur. Svo að siðustu
verða hin stærri erlendu verslunarhús sem ná
að mestu í ágóðann. Eins er líka hitt, að ef
verðfall kæmi í sama hlutfalli, þá yrðu hinir
sömu fyrir tapinu. Pað er með þessa verslun
eins og aðra, að hún er mikið komin undir
auðmagni, hyggindum og heppni, cf hún á að
verða arðvænleg.
Fiskverslun hjer á landi er mikið iarín að
færast í það horf að verða leynileg, það er