Ægir - 01.10.1912, Síða 20
128
E G 1R
Esbjærg
er orðin eins og menn vita rajög mikil íiski-
stöð á vestan verðum Jótlandsskaga, og hefur
aukist mjög mikið síðan hin nýja höfn var
hygð nú fyrir nokkru og kostaði milj. króna.
Mest fiska menn þar kola og ísu, sem er send
þaðan og seld til Pýskalands.
Árið 1886 voru þar aðeins 13 fiskiþiiskip, er
öíluðu fyrir 36 þús. kr. samtals. 1898 voru þar
orðnin 74 þilskip, er höfðu afla fyrir 205 þús.
kr. alls, en 1910 var skipatala þar orðin 177
skip með aíla fyrir 1,298,000 krónur; svo afþví
er auðsœtt að þar er framför í veiðunum.
Mest þakka menn þetta höfninni og telja
hana hið mesta íramfara og nauðsynjaverk
ekki einungis fyrir bæinn sjálfan, heldurogfyr-
ir allan vesturhluta landsins.
Botnvörpuveiðar við Testur-Afríku.
Eflir því sem opinberar skýrslur og blöð
skýra frá, þá hefur hinn litli vísir til botnvörpu-
veiða, sem byrjaður var við Vestur-Afríku fyrir
nokkrum árum, lánast mjög vei, mikið betur
en áhorfðist i fyrstu, og hefur aðferðin við
verkun og hagnýtingu á aflanum verið höfð hin
sama og tíðkast hjer í álfunni, bæði með söltun
á þorski og öðrum fiskitegundum, og hafa tvö
fjelög nú þegar nokkurn skipaflota og framleiða
fyrir utan nýjan lisk, er þau senda í næstu
kauptún, talsvert af verkuðum saltfiski er sendur
er norður og suður með Afríku.
Eiskiklak í Svisslandi.
Svissarar flytja inn mjög mikið af fiski á ári
liverju bæði af vatna- og sjávarfiski. En þar
eð þeir eiga örðugt aðstöðu mcð vciðiskap
sjálfir, þarsem þeir eiga livergi land til sjávar,
þá hafa þessir örðugleikar kent þeim að ala upp
vatnafisk, bæði lax og ýmsar aðrar tegundir, er
lifa i ám og vötnum til neyslu innanlands, og
hefur hið opinbera og einstakir menn lagt krafta
sína fram til þess að reka þetta i stórum stil,
svo nú má svo að orði kveða að Svissland sje
fremsl allra landa i lieimi í þeirri grein.
Skólar eru stofnaðir lil þess aðgefamönnum
Iciðbeiningar með fiskiklak. Strangar fyrirskip-
anir gerðar með veiðiskap i ám og vötnum um
livar og hvenær veiði byrji og livenær nct skuli
vcra lögð og upptekin, möskastærð, og margt
fieira. Hrogn úr flestum fiskitegundum eru keypt
liáuverði til klakstöðvanna ogveittverðlaunfyrir.
Arið 1880 voru aðeins 9 klakstöðvar, 84 stöðvar
1890, en 1910 eru þær orðnar 188, og voru
frjófguð 1,120,000 hrogna árið 1880 en nærfelt
85 miljónir 1910.
Af þessu er það augljóst, að með þessu móti
halda Svissarar ekki einungis við fiskistolni
hjá sjer, heldur og ala meira upp en veiðinni
nemur.
Hvenær kemur sá tími að alþjóðalög fyrir-
skipa fiskklak, til þess að bæta upp fiskeyðslu
hafsins? Pó sá timi sje ekki nálægur nú, þá
er það óefað að það gerist nauðsynlegt fyr eða
síðar.
Japanar
veita árlega mikið úr rikissjóði lil fiskiveiða,
og fer það ávalt vaxandi. Á þessa árs fjárlög-
um er til fiskiveiða og annara atvinnugreina i
sambandivið þær, veittar V/i milj. króna. Fram-
för hjá þeim i fiskiveiðum fer vaxandi með
liröðum fetum, bæði með tilliti til skipa, veiðar-
færa og annara nýtískutækja með hagnýtingu
aflans.
Fiskiráð Norðraanna
sem telur 38 meðlimi valda með atkvæðum
allra fiskideildarmeðlima í 16 ömtum í Norvegi,
kom saman 9. þ. m. í Björgvin. Það ræðir öll
fiskimálefni, kemur fram með uppástungur um
lagafyrirmæli og breytingar á lögum og samþykt-
um tilheyrandifiskveiðum,gefurmeðmælisín með
styrkveitingum, lánum og fleiru, og á frumkvæði
til stofnunar ráðanauta-embætta heima fyrir, til
leiðbeiningar að öllu er lýtur að veiðiskap á-
samt tilnefningu umboðsmanna í öðrum lönd-
um o. m. fl. Fiskiráðið stendur venjulega yfir
nokkra daga, og eru þar meðal annars haldnir
fróðlegir fj7rirlestrar um margt viðvíkjandi fisk-
veiðum og verslun.
Atlantsliaíið
f r á y f i r b o r ð i t i 1 li i n s m y r k a u n d-
irdjúps heitir bók sem nú er nýkomin út á
kostnað forleggjara Aschehougs & Co. i Krist-
janíu, og er hún rituð af Sir John Morrey og
Dr. Johan Hjort, að mestu leyti eftir rannsókn-
um þeim, sem gerðar liaía verið í hafinu af
rannsóknaskipinu »Michael Sars«. Bókin kemur
bæði út á ensku og dönsku, og er mjög mikið
verk. í henni er lýst straumum og hita á yfir-
borði hafsins og neðansjávar, ásamt öllu dýra-
og jurtalífi hafsins. Hún er með myndum og
mun það ekki hvað síst gera hana útbreidda
og víðlesna.
Prentsmiöjan Gutenberg.