Ægir - 01.02.1915, Side 1
8. árg
Fiskifjelag íslands hjelt aðalfund sinn
hinn 13. febrúar þ. á. i húsi K. F. U. M.
i Rvilc.
Frá deildum voru engir fulltrúar
mættir.
Formaður fjelagsins, Hannes Haíliða-
son, setti fundinn, lýsti þvi yfir, að hann
hefði verið löglega boðaður og dagskrá
auglýst.
Fundarstjóri var kosinn dr. Jón Þor-
kelsson og ritari Sveinbjörn Egilsson.
Formaður fjelagsins skýrði síðan itar-
lega frá störfum stjórnarinnar á hinu
liðna ári og gerði grein fyrir hag og
framkvæmdum fjelagsins. Frá staríi hinna
tveggja erindreka skýrði hann einnig og
gat þess að erindrekastarfið erlendis væri
nú veitt og hefði Matthías Þórðarson
hlotið það.
Þessu næst voru þau mál tekin fyrir,
sem dagskráin tiltók.
Um »Frumvarp til laga um fjórðungs-
þing« urðu nokkrar umræður og var því
vísað tíl fiskiþingsins. Framsögumaður
frumvarpsins var erindreki Matthias
Ólafsson.
Þá var tekið fyrir »Frumvarp til laga
um atvinnu við siglingar«. Framsögum.
þess var Þorst. Júl. Sveinsson. Því visað
til stjórnar Fiskifjelagsins til frekari
framkvæmda.
. 2.
Stjórnarnefndarrnálið »Um verðlaun
fyrir björgun úr sjávarháska« var tekið
til meðferðar. Eftir að ýmsir höfðu talað
og látið álit sitt í Ijósi, var borin upp og
samþykt svohljóðandi tillaga stjórnar-
nefndarinnar:
»Stjórn Fiskifjelagsins leggur það til
að það fari þess á leit við stjórnarráð
Islands að það (ráðherra) reyni að fá
samþykki konungs til þess að gefa megí
út íslenskan heiðurspening til verðlauna
fyrir björgun úr sjávarháska, en telur
um leið, af ýmsum ástæðum, heppilegt,
ef ekki sjálfsagt, að landsstjórnin (kon-
ungur) veiti verðlaunin.«
Þá var tekið fyrir »Fiskinefndarálitið«.
Um það urðu ýmsar umræður og að
síðustu samþykt tillaga nefndarinnar.
Nefndarálitið um stjórn á skipum var
þessu næst tekið til meðferðar.
Flytjandi þess máls var Geir skipstjóri
Sigurðsson.
Eftir stuttar umræður var till. nefndar-
innar borin upp og samþykt og hljóðar
hún svo:
»Nefndin leggur því til, að stjórn
Fiskifjelagsins verði falið að afgreiða
mál þetta til stjórnarráðsins, með þeim
tilmælum, að það gefi út auglýsingu um
að skipunarorðin »hægri og vinstri«
skulu notuð á öllum íslenskum skipum
frá 1. janúar 1916 i stað skipunarorðanna
»bakborða eða til stjórnborða« og »sljórn-
borða eða til bakborða«.
Að siðustu fór fram kosning tveggja
ÆGIR
MÁNAÐARRIT FISKIFJELAGS ÍSLANDS
Reykjavik. Febr. 1915.
Nr