Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1915, Blaðsíða 5

Ægir - 01.02.1915, Blaðsíða 5
ÆGIR 21 ur á skipi og farmi sem ekkert endur- gjald fæst fyrir, og eigendur verða þannig að bera áhætluna sjálfir og þann kostn- að sem af þvi leiðir. Skipsbyggingar eru líka að mestu leyti stöðvaðar og við- koma því engin, því verftin hafa nóg að gera með viðgerðir á skemdum her- skipum, byggingum á nýjum og jafn- framt að búa til sprengivjelar og önnur morðtól. Hvernig flutningsgjöld hafa stigið má sjá á eftirfarandi töflu: Flutningsgj. fyrir striöið á hverja smálest. Nú. — frá Cardif til London 3 sh. 14 — — Cardif — Genova 6 — 30 — — Newcastle — London 3 — 131/4 — — Newcastle — Rouen 5 — 20 — — Newcastle — Genova 71/4 - 37 — — River Plate — London 12Va - 63 — — Bilbao — Fees 4i/4 - 123/4 — — Newcastle — Marseille 6V2 — 301/2 - - Hull — Kaupm.h. 5 — 181/2 Arið 1911 var farmgjald írá Newcastle til Marseille 7 sh. fyrir smálest. árið 1912 11 sh. og árið 1913 8 shilling. Vöruverð. Salt og kol. Eins og gefur að skilja hefir þessi dæmalausa farm- gjaldshækkun svo mikla verðhækkun i för með sjer á öllum vörum er þarf að flytja sjóleiðis, einkum á allri þungavöru er felur i sjer litið verðmæti svo sem salt og kol. Hjeðan frá Bretlandi er flutningsgjaldið til íslands á kolum undir venjulegum kringumstæðum svip- að innkaupsverðinu. Frá Tyne og Firth of Forth 8—9 sh. innkaupsverð á skotsk- um kolum og flutningsgjald svipað. Salt frá Liverpool (Common and Fishery Salt) 127«—13^2 sh. smálestin, og flutnings- gjald svipað og á kolum. En þegar nú flutningsgjaldið er orðið 4—5 sinnum hærra en áður, þá verður innkaupsverð- ið hverfandi i samanbnrði við þá íeikna upphæð er notendur heima verða að gefa fyrir það þangað komið. í byrjun ófriðarins í sumar kostaði salt hjer 13/6 smál. en West Hartly kol 11/6, en í dag er verðið jafn hátt á þessari tegund af kolum og smálestin af saltinu, eða 12/6 hver smálest. Salt hefir þannig lækkað um 1 sh., en kolin stigið að sama skapi. Verðið þá verið sem næst 18 kr. smálestin af kolunum, en um 20 kr. af saltinu komið á höfn í Reykjavík, en verður nú sem nœst 40 kr. Þess ber þó að geta i sambandi við þetta, að líkur eru til þess að nokkrar saltbirgðir hafi verið fyrirliggjandi á flestum helstu fiski- veiðastöðum á íslandi eða þá farmar verið í undirbúningi með hleðslu við Miðjarðarhafið sem samið hafi verið um flutning með fyrirfram (Time Charters) samkvæmt lágum taxta, og væri því ó- rjetllátt að selja þær birgðir dýrar en áður. Viðvikjandi kolum skal þess látið get- ið, að þegar flutningsgjöld eru komin yfir venjulegt hámark er hyggilegra að kaupa betri tegundir af kolum, sem bæði eru hitameiri og innihalda minna af ösku og öðrum úrgangi. Þessari megin- reglu ættu menn ávalt að fylgja, en ekki síst eins og áslatt er nú. Matvörur. Hveiti. Á þessari vöru liefir orðið mikil verðhækkun síðustu mánuð- ina, og á flutningsgjaldshækkunin eðli- lega mestan þált i því. Talið er til að flutningsgjaldskostnaður hingað lil Bret- lands frá Ameriku á hveili, sje nú, sem svarar 1 pence (c. 8 aur.) á hver 3 pd. Enska vikublaðið »The News of the World« frá 24. jan. talar um verðhækkun á hveiti á þessa leið: »Þegar farmgjöld eru orðin svo há að alveg keyrir úr hófi og verð á vörum að sama skapi, þá ætti landstjórnin að sjá svo um að ensk skip sigldu eltki með

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.