Ægir - 01.02.1915, Blaðsíða 8
24
ÆGIR
þrifalega meðfarið og verkunargögn eru
nothæf til slíks.
Virðingarfylst
Liverpool 26. janúar 1915.
Mallhías Þórðarson.
A t h s.
Eins og að framan segir er verð á
enskuin peningum mjög hátt. Nú sem
stendur er 1 £ 19 kr. 38 aurar, 1 shill-
ing verður þvi 96 aurar og 1 pence 8 aurar.
1 mark er hjer um bil 88 aurar, 1 liri
68 aur. og 1 pes. eins. M. Þ.
Frumvarp til laga
um fjórðungsþing.
1. gr. í hverjum landsfjórðungi skal vera
fjórðungsþing og skal það haldið 1 apríl-
mánuði, það ár, er Fiskiþing íslands kem-
ur saman.
í fyrsta skifti skulu fjórðungsþingin
haldin í kaupstöðum fjórðunganna, en eftir
það ákveður hvert þing hvar næsta þing
skuli haldið, innan landsfjórðungsins.
2. gr. Fjórðungsþingin hafa það mark-
mið, að koma á samvinnu meðal hinna
ýmsu deilda innan fjórðungsins. þau ræða
og gera ályktanir um þau mál fjórðungs-
ins og landsins i heild sinni, er lúta að
framförum i fiskiveiðum og öðrum þeim
málum, er standa í sambandi við þær og
gefa Fiskiþinginu bendingar og tillögur uin
þær framkvæmdir, er þau álíta tiltækilegar.
3. gr. Fjórðungsþingin kjósa hvert um
sig 1 mann til þingsetu á Fiskiþingi ís-
lands í Reykjavík. Gildir sú kosning til 4
ára i senn og má aðeins kjósa þá menn,
sem eru meðlimir einhverrar deildar. Þó
er kjörgengi bundið við búsetu í landinu.
Sömuleiðis kjósa þingin 1 varaþingmann
og er kosning hans bundin sömu skilyrð-
um.
4. gr. Þingin velja sjer sjálf embættis-
menn meðal fulltrúanna og eru þeir þessir:
Forseti, varaforseti, skrifari, varaskrifari
og' gildir kosning þeirra til næsta þings
á eftir.
Forseti kallar saman þingin á þeim stað,
er þingið hefir ákveðið. Hann geymir mill-
um þinga gjörðabók þingsins og annast
um að koma henni á þingið, ef hann eigi
mætir þar sjálfur. Hann skal og útvega
fundarhús handa þinginu og annast um
húsnæði handa fulltrúunum o. s. frv. í
forföllum forseta hefir varaforseti öll hin
sömu störf á hendi.
5. gr. þingin halda gjörðabækur og skulu
i þær ritaðar allar ályktanir þeirra.
Að hverju fjórðungsþingi afstöðnu skal
afrit af gerðum þess sent Fiskifjelagi ís-
lands. Skal forseti, eða varaforseti, i for-
föllum hans, sjá um eftirritið og staðfesta
það með undirskrift sinni.
þingin gefa þingmönnum og varaþing-
mönnum kjörbrjef og skulu þau undirrit-
uð af forsetum eða, í forföllum þeirra, af
varaforsetum.
Þá er fjórðungsþing lögmælt, er fullur
helmingur fulltrúa er mæltur. Nú ferst
kosning þingmanns fyrir, af þvi að fjórð-
ungsþing hefir eigi verið kallað saman,
eða eigi orðið lögmætt, og nefnir þá stjórn
Fiskifélags íslands þingmann og varaþing-
mann fyrir fjórðunginn og gildir sú kosn-
ing fyrir næsta kjörtímabil.
6. gr. Fiskifélag íslands greiðir húsaleigu
fyrir fundarhús fjórðungsþinganna, svo og
fyrir ræstingu á þeim, Ijós og hita.
Rjett skulu ráðunautar Fiskifjelags ís-
lands hafa til setu á fjórðungsþingunum,
málfrelsi og tillögurjett, en eigi greiða þeir
atkvæði.
7. gr. Til fjórðungsþinganna er kosið á