Ægir - 01.02.1915, Blaðsíða 2
18
ÆGIR
fulltrúa í stað þeirra Bjarna Sæmunds-
sonar og Geir Sigurðssonar, er út höfðu
verið dregnir með hlutkesti samkvæmt
lögum Fiskifjelagsins; voru báðir endur-
kosnir, Bjarni með 15 og Geir með 13
atkvæðum, og eiga þeir að mæta sem
lulltrúar á Fiskiþinginu fyrir Reykja-
víkurdeildina.
Varaíulltrúi var kosinn Þorst. Júl.
Sveinsson.
Endurskoðunarmenn voru kosnir
Magnús Sigurðsson lögmaður og Brynj-
ólfur Björnsson tannlæknir.
Úrskurðarmenn voru kosnir þeir Bene-
dikt Sveinsson rilstjóri og dr. Jón Þor-
kelsson.
Allir þessir menn voru kosnir til 4
ára.
Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum,
enda orðið áliðið er hjer var komið og
var þvi fundi slitið.
Fundurinn var fámennur, margir sjó-
menn fjarverandi og ýms fundarhöld í
bænum hið sama kveld, hafa átt sinn
þátt i að gera hann fámennari en skvldi.
Skýrsla
erindreka Fiskifjelags íslands
í útlöndum.
Þegar Mðnum var slitið i Norður-
álfunni um mánaðamótin júlí og ágúst
síðastliðið ár, kom snögg breyting á öll
viðskifti meðal þjóðanna er þá voru í
fullu fjöri. Herskip ófriðarþjóðanna voru
á sveimi um öll höf og gera þegar upp-
tæk kaupskip ófriðarþjóðanna eða söktu
þeim með dýrum íörmum, og ljetu hlut-
lausra rikja skip mæta ýmsum þungum
búsyfjum, er tafði ferð þeirra eða hindr-
aði þær með öllu. Ábyrgðargjöld á skip-
um og vörum í Norðurálfunni hækkaði
þvi strax, og varð jafnvel ófáanlegt um
tíma; en þegar kom fram í nóvember
og Englendingar höfðu náð í sínar hönd-
ur yfirráðum yfir hafinu aftur, að mestu
leyti, komst nokkurn veginn á jafnvægi
aftur.
í byrjun ófriðarins teptist þegar öll
verslun við Þýskaland, nema það, sem
fluttist yfir Skandinaviu og Holland, og
var það að eins lítill hluti þess vöru-
magns er Þýskaland hafði haft i veltu
áður stríðið byrjaði.
Yerslunin við Belgíu hætti er Þjóð-
verjar tóku Antverpen, sem var önnur
stærsta verslunarborg á meginlandi álf-
unnar, en auk þess var verslun við Norð-
urlönd hættuleg og takmörkuð vegna
sprengiduflahættu í Norður- og Austur-
sjónum, og þegar Englendingar með aug-
lýsingu 4. nóv. lýstu Norðursjóinn ófrið-
arsvæði, er að eins bæri að sigla um
eftir vissum reglum, takmarkaðist áhætt-
an, en ferðirnar urðu aftur á móti lengri
og þar af leiðandi kostnaðarsamari.
Peningaviðskifti. Eins og gefur að
skylja, og menn hafa tilfinnanlega orðið
varir, komust öll peninga- og banka-
viðskífti strax á ringulreið. Bankar hækk-
uðu vexti ákaflega mikið, t. d. eins og
Londonarbanki er hækkaði vexti sína úr
2V20/0 UPP í 10°/° dagana frá 26. júlí til
1. ágúst, og aðrir bankar gerðu svipað.
Kauphöllum, þar sem öll stærri versl-
unarviðskifti fóru fram, var víðast hvar
lokað, og flestar þeirra ekki opnaðar
aftur, fyrr en undir lok ársins.
Gullforði bankanna var trygður með
þvi að bannað var að láta út gull, en
aftur á móti gefnir út seðlar til þess að
fullnægja viðskiftum manna innanlands.
í Englandi voru t. d. gefnir út 1 punds