Ægir - 01.12.1915, Page 4
166
ÆGIR
Til ólafsfjarðar komum vjer um dag-
setursleytið og var mjer þar vel tekið af
Páli kaupmanni Bergssyni, sem er mest-
ur útgerðarmaður þar og dugnaðarmað-
ur með afbrigðum. Daginn eftir, þriðju-
dag 19. október hafði jeg fund með Ó-
lafsfirðingum. Flutli jeg þar erindi og
stofnaði þar deild með 36 meðlimum.
Um kvöldið fórum við Páll Bergsson
yfir fjörðinn að Gunnólfsá til að skoða
þar hafnarstæði. Ætla jeg að það sje
Guðmundur Hlíðdal, sem að undirlagi
þeirra Páls Bergssonar og Th. Iirabbe,
hefur mælt þarna og hr. Krabbe gert á-
ætlun um bylgjubrjót.
Eigi skal neitt nm það dæmt hvort
þarna sje unt að gera fullgilda höfn, en
svo girðist, að fá megi þarna nokkurt
hlje handa vjelabátum et 80—100 metra
brimbrjótur gæti staðið þar, og eigi virð-
ist það óálitlegra en Bolungarvik. Mjög
mikið gerðu Ólaísfirðingar af sjávargangi
þar að haustinu og vetrinum, svo að
mjer virðist jafnvel undrum sæta.
En eitt er víst, að erfitt á sjávarútveg-
ur Ólatsfirðinga uppdráttar ef engin bót
ræðst á hafnleysinu þar. Hafa þeir orðið
fyrir stórsköðum af völdum þess og þora
nú eigi að láta báta sína liggja á íloti,
eftir að september líður, af ótta fyrir að
þeir muni kaífærast. Þeir geta því ekki
notað haustvertíðina að neinum mun.
Eru þó Ólafsfirðingar afburða sjómenn
og mestu aflaklær.
Sagt var mjer á Siglufirði, að Siglfirð-
ingar hefðu í sumar verið lítið meir en
hálfdrættingar við ólafsfirðinga og hefði
þó fiskurinn lengstum staðið á miðum
Siglfirðinga.
Mikið mein er það útgerðinni á þess-
um stöðum að ekkert frystihús er þar til.
í haust gátu menn á Slglufirði eigi farið
til fiskjar sökum beytuleysis. Er hörm-
ung að hugsa sjer slikt, eftir allar þær
miljónir af sild, sem komu á land á
Siglufirði í sumar sem leið.
Virtist mjer að menn findu nú sárt til
þessa, hvort sem nú verður úr bætt
eða ekki.
Miðvikudag 20. okt. lagði jeg af stað
frá Ólafsfirði með mótorbát til Hríseyjar.
Ivom jeg þar um hádegisbilið. Siðari
hluta dagsins hafði jeg fund með Hris-
eyingum og stofnaði þar deild með 17
meðlimum. Um nóttina gisti jeg hjá Jó-
hannesi Davíðssyni í Syðstabæ. Daginn
eftir var jeg svo fluttur á vjelabát til
Dalvikur. Þekti jeg þar engan mann,
en mjer hafði verið bent á Þorstein
Jónsson kaupmann þar. Fór jeg þegar
til fundar við hann og tók hann mjer
vel. Boðaði hann til fundar þá þegar.
Hjelt jeg svo fund þar síðari hluta dags-
ins. Flutti jeg þar alllangt erindi og að
því loknu var stofnuð deild með 15
meðlimum.
Að loknum fundi fjekk jeg hesta og
fylgd áleiðis til Akureyrar. Komst jeg
um kvöldið að Fagraskógi og gisti þar
um nóttina.
Jeg hafði hugsað mjer að fá ilutning
frá Hjalteyri yfir á Ivljáströnd en um
kvöldið hitti jeg menn frá Kljáströnd í
Fagraskógi og töldu þeir lítil líkindi til
að deild yrði stofnuð þar þótt jeg kæmi
þangað. Mjer var kunnugt um að menn
þessir, er jeg átti tal við, voru leiðandi
menn þar á staðnum og virtist mjer þvi
ekki vænlega horfa með deildarstofnun
þar. Rjeð jeg þvi af að halda til Akur-
eyrar og fara þá heldur þaðan út i
Höfðahverfið, ef svo vildi verkast. Hafði
jeg og heyrt að Þórðar Gunnarssonar á
Höfða væri von til Akureyrar og hugði
jeg að ná fundi hans þar og ræða við
hann um horfur fyrir deildarstofnun. En
svo atvikaðist að fundum okkar Þórðar
bar aldrei saman. Mjer hafði verið sagt