Ægir - 01.12.1915, Blaðsíða 14
176
ÆGIR
Erlendis.
Skýrsla yíir verðlag á fiski og fiskiafurð-
um við lok nóvembermán. 1915, til
stjórnar Fiskifjelags Islands, frá [erind-
reka fjelagsins erlendis.
Kaupmannaliöfn.
Fiskur í svipuðu verði og áður, verk-
aður stórfiskur kr. 135,00 pr. skpd. Smáf.
kr. 115,00 pr. skpd. Ýsa kr. 105,00 pr.
skpd. Labrador kr. 95,00 pr. skpd.
Saltfiskur, þorskur kr. 88,00 pr. skpd.
Smár kr. 80,00 pr. skpd. Ýsa kr. 75,00
pr. skpd.
Lýsi, Ijóst, þorsk eða hákarlalýsi kr.
135,00 pr. tunnu, brúnt2*100 —115 pr.
tunnu. Meðalalýsi 140,00|kr. pr, tunnu.
Ofanskráð verð á lýsi er miðað við
verð á lýsi frá íslandi með svokölluðum
Clausul, eða með öðrum orðum það
lýsi sem Englendingar* hafa stoppað á
leið til Danmerkur, en gefið leyfi til að
mætti flytjast hingaðjgegn skuldbindingu
um það yrði ekki selt út úr landinu.
Það lýsi sem hefur komist hingað án
þess að lenda í höndum ’Englendinga og
er þess vegna Clausul fritt er i tvöfalt
hærra verði. Síld 66 aura pr. kiló.
Bergen 15. nóv.
Síðustu daga hefur engin verslun átt
sjer stað i saltfiski, og verður þvi verðið
að teljast svipað og áður, Sama má
segja um meðalalýsi, engin verslun með
það síðustu daga. Brúnt þorskalýsi hef-
ur verið selt fyrir kr. 200,00 pr. tunnu
106 kíló. Síld er seld fyrir kr. 50,00 pr.
tunna. Islands síld hjer um bil uppseld.
Hamburg 25. nóv.
Verð á íslands sild er nokkuð svipuð
og síðast, en eftirspurnin hefur aukist
þegar byrgðirnar minkuðu. Síðast hefur
verið borgað 90—95 mörkfyrir tunnuna.
Lýsi hefur staðið í því verði sem hjer
segir: Ljóst síldarlýsi 280,00, Ijóst sellýsi
235 mörk, hvallýsi nr. 0 310 mörk, og
meðalalýsi 320 mörk pr. tunnu.
Yfir höfuð má svo að orði kveða að
verð á fiski og fiskiafurðum haldist ó-
breytt og jafnvel hækkandi. Hvað við-
vikur nýjum fiski og sild, þá eru allar
slíkar fiskitegundir í geysiháu verði bæði
á meginlandinu og eins i Englandi, og
fer hvorítveggja saman að fiskimenn fá
miklu meira fyrir afla sinn en nokkurn
tíma hefur átt sjer stað áður, og að sama
skapi verða kaupendur að gefa meiraen
dæmi eru til. Síldarveiðin í Englandi
hefur verið mjög góð, enda hafa fiski-
mennirnir haft meiri ávinning en nokkurn
tíma hefur þekst áður. Sem dæmi um
verð á nýjum fiski skal þess getið að
nýr þorskur hefur síðustu daga hækkað
í verði hjá smásölukaupmönnum um 33
aura kiló, svo nú er útsöluverðið 2 kr.
pr. kíló.
Eins og mönnum er þegar kunnugt,
er útflutningsgjald á síld í Noregi á-
kveðið kr. 4,00, og eftir þvi sem heyrst
hefur er jafnvel útlit með nð takmark-
aður verði útflutningur á síld frá Hol-
landi.
í næsta blaði koma skýrslur um nám-
skeið austanfjalls, sem Fiskifjelagið hefur
látið halda.
Prentsmiðjau Gutenberg.