Ægir - 01.01.1916, Síða 15
ÆGIR
9
aðaláherslan lögð á að kenna þær, og að
þekkja á áttavitann.
Fyrirlestrarnir voru aðallega um skift-
ingu á gráðuneti jarðarinnar, um af-
hvarf (deviation), um að setja niður átta-
vita, og um áhrif segluafls í lárjettu og
lóðrjettu járni, og hvernig það verkaði á
áttavitann.
Auk þess voru haldnir fjórir sameigin-
legir fyrirlestrar, fyrir þá sem tóku þátt
i mótorvjelafræði á námskeini þvi, er hr.
vjelfræðisráðunautur Ólafur Sveinsson
hjelt þar um sama leyti. Voru þrír
þeirra læknisfræðislegs efnis og fluttir af
hr. hjeraðslækni Gísla Pjeturssyni, og
einn um björgun af Kr. Bergssyni.
Kenslan fór vanalega fram 6 stundir á
dag.
Það dró nokkuð úr aðsókninni að
námskeiði þessu, að góður afli var á
Eyrarbakka dagana sem það var haldið,
og voru því margir sem ekki gátu not-
að það, sem annars myndu hafa gert
það.
Próf var haldið að afloknu námsskeið-
inu og fengu 6 menn vottorð.
Reykjavik 27. des. 1915.
Kr. Bergsson.
Skýrsla
Ölafs T. Sveinssonar,
frá 1. okt. til 31. des. 1915.
Eftir komu mina frá Vestmannaeyjum
fór jeg til Eyrarbakka eftir 4 daga dvöl
i Reykjavik, til að halda námskeið þar.
Þegar jeg kom þangað, frjetti jeg, að
engir þátttakendur hefðu gefið sig fram
frá Stokkseyri og mun það hafa verið
vegna þess, að vegalengdin milli þessara
staða er svo löng, að erfitt mun vera
að sækja skóla á hvorum staðnum sem
er, og mjög vafasamt hvort nægilegt
húspláss mundi hafa fengist fyrir alla
aðkomna þátttakendur.
Fyrir beiðni Stokkseyringa, og sökum
þess að mótorbátar eru þar margir, 17,
varð jeg við ósk þeirra um að halda
námskeið þar. Námskeiðið á Eyrarb.
byrjaði 21. nóv. 1915. Bæði voru þau
úti 21. des. 1915.
Námskeiðið á Stokkseyri sóttu 35,2 að
meðaltali. en á Eyrarbakka 33,4.
Að enduðum námskeiðunum var
haldið próf; undir prófið gengu á Stokks-
eyri 16 en á Eyrarb. 21, af þessum 37
voru 34 sem fengu prófvottorð. Að ekki
lleiri gengu undir prófið stafar af því
að margir nemendanna höfðu ekki aldur
til þess — voru yngri en 17 ára. —
Ivenslan fór fram bæði munnlega og
verldega. Á Stokkseyri voru kenslutim-
arnir 63 en á Eyrarbakka 72. Auk þess
voru haldnir 3 læknisfræðislegir fyrir-
lestrar af hr. hjeraðslækni Gísla Pjeturs-
syni og 1 fyrirlestur af hr. ritstjóra Páli
Bjarnasyni, um hafið, einnig talaði síð-
astnefndur við námskeiðsuppsögnina.
Þessum tveim mönnum og öllum sem
hjálpað hafa til með það að námsskeiðin
tækjust vel flyt jeg minar bestu þakkir.
Þessi námskeið voru lang best sótt af
þeim, sem jeg enn hefi haldið, og sýndu
menn á báðum stöðunum verulegan á-
buga fyrir þessu, enda eru þar margir
góðir menn sem hvetja þá yngri til dugn-
aðar og framtakssemi, og eru slíkir
menn kauptúnunum til mikils sóma.
Mótorbátum fer óðum fjölgandi á þess-
um stöðum. Á tveimur síðustu árum hef-
ur þeim fjölgað um 8—10, allir þessir
nýju bátar eru stærri og betri en þeir
gömlu, enda er sjór sóttur lengra en
áður.